Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Side 52
Nokkur örnefni í Víga-Glúms-sögu.
Eftir Eirik Briem.
1. Kvarnárvað. Helgi magri, sem nam Eyjafjörð, gaf Hámundi,
tengdasyni sínum, land milli Merkigils og Skjálgdalsár og bjó hann á
Espihóli hinum syðra, er nú heitir Litlhóll, þ. e. Litli-Espihóll. Þórar-
inn, sonarsonur Hámundar, gjörði bú fyrir norðan Espihól og bjó á
Espihóli hinum nyrðra, sem nú er venjulega nefndur að eins Espihóil
eða, sem tíðast er í Eyjafirði, Stórhóll, þ. e. Stóri-Espihóll. Milli bæj-
anna gengur fram að Eyjafjarðará hæð, brött fram við ána; það er
Espihóllinn, sem bæirnir eru kendir við; bæjarlækurinn á Espihóli
rennur niður með Espihólnum að norðanverðu og út í Eyjafjarðará,
rétt við hólinn. Lækurinn hefir upptök sín í dal uppi í fjallinu fyrir
ofan Espihól, er heitir Kvarnárdalur, og rennur eftir dalnum endi-
löngum; hann er eflaust sú Kvarná, sem dalurinn er kenndur við,
enda heyrði ég stundum lækinn nefndan svo, þegar ég var að alast
upp á Espihóli; að vísu hefir Merkigilsá einnig upptök sín í Kvarnár-
dal, en hún fellur út úr honum rétt fyrir neðan upptökin og það eru
engin líkindi til, að dalurinn hafi verið kenndur við þá á eða að hún
hafi nokkurn tíma heitið Kvarná.
í Víga-Glúms-sögu, 11. kap., er skýrt frá því, að Esphælingar máttu
búast við, að .Glúmur myndi koma með fjölmenni, til að hefna fyrir
ófarir Arnórs frænda síns; því næst segir svo: »Þar var þá vað á
ánni, sem nú er ekki. Þeir söfnuðu nú at sér Lxxx vígra manna um
nóttina ok bjuggust við á hólinum framanverðum, því at þar var
vaðið á ánni við hólinn sjálfan«. Hóllinn, sem hér er átt við, er Espi-
hóllinn, því að enginn annar hóll er við Eyjafjarðará þar í nánd, og
vaðit, sem var við hólinn sjálfan, hefir því einmitt verið þar, sem
bæjarlækurinn á Espihóli, öðru nafni Kvarná, fellur í Eyjafjarðará. í
Víga-Glúms-sögu, 22. kap., er sagt frá stefnuför Þórarins á Espihóli til
Uppsala; lá þá leið hans fyrir neðan Þverá, bústað Glúms; og er
Þórarinn var á heimleiðinni, segir svo: »Esphælingar riðu yfir ána;
sá Glúmr för þeirra og ætluðu yfir at Knarrarvaði«. Áin, sem Esp-
hælingar ,voru komnir yfir, er Glúmur sá för þeirra, hlýtur að vera
Þverá, en áin, sem þeir eiga eftir að fara yfir, er Eyjafjarðará, og
enginn vafi er á, að þeir hafa ætlað að fara yfir hana á áður-nefndu