Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Side 57
57
þama bendir manni á staðinn, þar sem þetta líka er eini staðurinn
á dalnum, sem heíir tindalandslag *).
Þegar ég er aö skrifa þetta veiti ég því eftirtekt, að Hafragil
það, sem nefnt er í Hvolskirkju-máldaga um 1500 sem landamerkja-
gil á Svínadal (Fornbréfasafnið, 3. bindi, bls. 71), er sama gilið og
nú heitir Njálsgil. Er það skammt fyrir neðan Hvolsselið, en hinum
megin í dalnum, og fer þá samkvæmt orðum Sigurðar Vigfússonar:
»að auðvitað sé það nálægt hvað öðru, sem dragi nafn af hinu
sama«. í nefndum Hvolsmáldaga stendur: »Svínadal að eign frá
Hafragili til Rjettargils, fyrir austan fram, en allan vestan fram.
Þaðan jafn geingt ofan til Volafalls. En í landamerkjaskrá Hvols
frá 1884 stendur: »Svínadal að eign frá Njálsgili til Réttargils
austan fram, en frá Hrafnagili ofan til Volafalls vestan fram«. Réttar-
gil og Hrafnagil eru hvort andspænis öðru, rétt sunnanvert við
Mjósundin. Það er auðséð, að hér er átt við sama gilið, — merkin
milli Bessatungu og Hvolseignar, áður nefnt Hafragil, nú Njálsgil.
Er þetta líka eina gilið, sem um getur verið að ræða á téðum jarða-
merkjum. Hitt, að Hvolskirkja hafi átt Svínadal suður að Hafragili
hinu syðra, getur ekki átt sér stað, því að ekki hefðu þeir Gunnar
Jónsson í Sælingsdalstungu, Loftur Ormsson á Staðarhóli og Pétur
sonur hans1 2) sleppt slíku landi undan Sælingsdalstungn, og hvernig
er það þá komið aftur undir Tunguna úr eign Hvolskirkju? Það
virðist því vafalaust, að tvö hafa Hafragilin verið á dalnum, sé rétt
farið með nafnið í máldaganum.
Mér væri næst að halda, að þegar Bessi sat í Bessatungu myndi
hann hafa reynt að ná dalnum til Mjósunda undir jörðina, hefði dal-
urinn þá verið óbyggður afréttur eða ónuminn.
Loks ætti að gjöra sér grein fyrir því, hvort líklegt sé, að Þor-
kell hafi verið í hrossaleit suður undir Hafragili, ef bær hans hefði
staðið vestan Mjósunda.
Veturinn 1002—1003 virðist ekki hafa verið frostharður, því að
Hvammsfjörður, — sem leggur langt út í frostavetrum og ís liggur á
innan-til fram yfir sumarmál, — er nú auður í páskavikunni (28. marz
til 10. apríl) fyrir Hjarðarholts landi, því að Hjarðhyltingar eltu þá
Þórhöllusyni á ferju Ólafs. Kjartan ríður vestur Hvammsdalsheiði
1) Hvolssel er sunnanvert við »Selhólana«. Vestanvert við þá eru sagðar
rústir gamlar. Er ekki útilokað að Hafratindar hefðu staðið þar.
2) Þessir þrir menn voru eigendur Sælingsdalstungu frá þvi Helgi Gutt-
ormsson, sá er lét taka vitnisburðinn um að Svínadalur lægi undir Sælings-
dalstungu, og Úlfrún kona hans deyr, til þess að nefndur Hvolsmáldagi er
skrifaður.