Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Side 92

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Side 92
92 snjó norðan úr henni, — upp-af vatninu. Snjóölduvatnskvísl fellur í Tungnaá, á mótsvið Svarta-Krók. Fyrir nokkuru, þó í manna minn- um, var smávatn suður með kvíslinni, kallað Fremra- eða Litla-Snjó- ölduvatn, en á síðari árum hefir Tungnaá fyllt það af sandi. Við austurbotn Snjóölduvatns er Snjóölduver. Smávatn er þar fyrir norð- an, sem ýmsir kalla Ónýtavatn fremra. — Skammt fyrir sunnan Nýjavatn og vestur-undir Vatnakvísl er smávatn, sem heitir Ampa- pollur. Fékk hann nafn af því, að Arnbjörn, sem áður er nefndur, var einhvern tíma (líklega á árunum 1870—75), að elta álft, — hann veiddi jafnt fugla sem fiska —, og reið fylfullri hryssu; álftin bjarg- aði sér út á pollinn og Arnbjörn reið á eftir, en hryssuna mæddi svo sundið að hún fórst (sprakk). En Arnbjörn lét sér ekki bregða, hélt sér í fax hryssunnar og beið þess, að báran bæri hana að landi. Síðan 1918 hefir pollur þessi minnkað mjög fyrir öskuburð með leys- ingarvatni úr öldum þar í kring. (Sýndist mér er ég fór þar síðast, 1927, að hann væri ekki meiri en hálfur við það sem áður var). — Á milli vatnanna og Tungnaár er samhangandi fjallgarður innan fyrir Litlasjó og langt suður fyrir Snjóölduvatn; hann er nefndur einu nafni Snjóöldufjallgarður. Skarð er í honuum sður-af Kvíslum og er venjulega nefnt Snjóalda fyrir sunnan skarðið!)- í skarðinu er afarhár steindrangur, sem heitir Nátt-tröllið, en venjulega kallaður Tröllið. — Nokkuð Iangt suður með Tungnaá — suður-af Snjóöldu —, gegnt Kýlingum, eru Austur-Bjallar. Norðan-undir þeim eru 2 stöðuvötn nafnlaus og ölduklasi þar norður-af einnig nafnlaus. — Fremstu og hæstu ölduna vestan-við Vatnakvisl hefi ég heyrt að Þorvaldur Thor- oddsen hafi nefnt Skygnisöldu; þetta nafn hafa vatnakarlar og ör- æfamenn1 2) enn ekki lært; mætti eins nefna hana »Skygnir«. All-stórt, nafnlaust vatn er á milli öldunnar og Vatnakvíslar; mætti þá nefna það Skygnisvatn. — Skammt frá öldunni vestur með Tungnaá er Yrpuver. Þá eru talin örnefni á Landmannaafrétti, þau sem mér eru kunn, en af ásettu ráði hefi ég sleppt lagnanöfnum við veiðivötn, því bæði er það, að þau koma afréttinum ekki beinlínis við, sem afrétti, og þar að auki verður þeim ekki lýst, nema með mælingum. Kunni ein- hver að greina frá örnefnum, sem eigi eru hér talin, væri æskilegt að þeim yrði bætt við. Guðmundur Árnason. 1) Frá Tjarnarkoti er venjulega kölluð Snjóalda aldan sunnan-við Snjóöldu- vatn, en þegar safnað er, eru grasbrekkurnar suður-við Tungnaá kallaðar Snjóalda. Nokkuð langt á milli, þó i sama fjallgarði, sé. 2) Þeir, sem safna öræfin, eru kallaðir öræfamenn.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.