Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Síða 3
7
Eg get ekki gert grein fyrir öllum örnefnum, sem til eru þar vestra,
né heldur öllum þeim orðum, sem þar eru höfð til þess að mynda
nöfn. Þó að eg telji ekki með orðin, sem notuð eru einungis sem
fyrri nafnaliðir, svo sem flest mannanöfn, heiti dýra og jurta og
lýsingarorð, heldur aðeins þau orð, sem koma fram sem sjálfstæð
örnefni eða seinni liðir þeirra, þá gizka eg á, að þau muni vera um
700 eða fleiri í þessum þremur sýslum, en á öllu landinu töluvert
fleiri en 1200. Sum þeirra, svo sem dalur, hóll og lœkur, eru til í
landi langflestra jarða, en langtum fleiri orð aðeins á fáum stöðum
eða jafnvel á einum einasta stað — til dæmis nöfn fjalla eins og
Gláma, Ritur og Tálkni. — Langflest orð, sem nokkuð kveður að,
eru notuð einnig í öðrum landshlutum. Þó að hvert hérað eigi nokkur
séreiginleg nafnorð, þá er þó allt meginið sameiginlegt og hvergi
um að villast, að þar eru íslenzk örnefni, þó að ekki nema fáein nöfn
séu komin saman.
Eg vildi taka þetta fram, þar sem eðlilegt er, að hér verður talað
mest um það, sem er séreiginlegt fyrir einstaka landshluta. Eg ætla
auk þess að taka fram, að erfitt mun reynast að finna nokkuð, sem
er sameign allra sveita hinumegin við Gilsfjörð og Bitru og um leið
full séreign þeirra, svo að engin nágrannasveit eigi þátt í því. A
meðan engin nafnaskrá er komin úr Dalasýslu og fátt úr Húnavatns-
sýslu, er þó vitaskuld alls ekki hægt að fullyrða neitt um það.
Fyrst skal nú nefna fáein orð, sem virðast lítið vera notuð í ör-
nefnum nema á norðvesturskaganum, en þó aðeins nokkrum hluta
hans.
Hnjótur, sem merkir eitthvað, sem stendur upp úr, er notað í
Vestfjörðunum frá Látrabjargi norður, en ekki í Djúpinu, það sem
skrárnar ná.
Kiki, eftir orðabók Sigfúsar Blöndals nafn á mjórri ræmu milli
gilja eða vatnsfalla, kemur í örnefnunum fram á hér um bil sama
svæði og hnjótur, en þó einnig á einstaka stað innarlega í Djúpi.
Mórilla, sem merkir skolbrúnn litur á vatni, og þetta vatn sjálft,
á Norðurlandi borið fram mórigla (mórygla), er eftir skránum, sem
komnar eru, notað einungis í ísafjarðarsýslu. í Barðastrandarsýslu
virðist í stað þess haft orðið móra.
Ormur er í Vestur-Barðastrandarsýslu og á einstaka stað í syðri
hluta Isafjarðarsýslu haft sem nafn á mýrum og síkjum.