Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Blaðsíða 10
14
sem tók við ábúðinni, mátti til að láta segja sér til merkjanna. Seinna
meir voru landamerkin helzt kölluð mark, merki og landamerki, en
mark mun víðast hvar hafa fallið niður aftur.
Eg verð að láta þetta duga, en skal þó aðeins nefna nokkur önnur
orð af sama tæi. Þar er látur, meðaí-, mörk ,,skóglendi“, ríp, scetur
„seljaland“, vangur og að líkindum hrís og margt annað.
Af því, sem nú var skýrt frá, held eg að megi leiða tvennt, í fyrra
lagi, að fæst örnefni, sem eru notuð næstum eingöngu innan ein-
stakra jarða, munu vera búin að lifa langan aldur, og í öðru lagi, að
nöfn svo sem Miklamýri og Reykhóll munu að öllum líkindum vera
frá miðöldum, þó að þau sýnist tilheyra þeim nafnaflokki, sem nú
var greint frá. Það verður því að hafa mikla varúð við, þegar dæma
á um örnefni út frá þessu. Það verður meðal annars að gæta þess,
að fá orð munu hafa úrelzt í öllum fjórðungum á sömu öld, og þess
vegna að athuga hvern landshluta eða jafnvel hverja byggð út af
fyrir sig. Þess þarf einna mest, þegar beita á þessari aðferð til þess
að sjá gleggra, hvenær sumar gamlar atvinnugreinir muni hafa lagzt
niður, svo sem rauðablástur, svína- og geitarækt, viðarkolagerð eða
kornyrkja. Eg tel það öruggt, að rannsókn örnefnanna geti orðið
að miklum fróðleiksauka um ýmislegt slíkt.
Líkt og menn munu ekki hafa alstaðar hætt um sama leyti að
nota orð, sem úreltust, hafa þeir og tæplega byrjað að nota ný-
mynduð orð í öllum landshornum í senn, heldur munu flest ný orð
hafa verið nokkuð lengi að dreifast frá átthögum sínum um öll útnes.
Sama máli gegnir með fjölda samsettra nafna, sem auðsætt er, að
ekki hafa verið mynduð í mörg skipti og á mörgum stöðum, heldur
aðeins á einum stað eða ef til vill tveimur eða þremur og þaðan
breiðzt út, af því landsmönnum þóttu þau vel fallin. Eg á ekki við
algeng nöfn, sem um leið eru notuð sem sameiginleg heiti, svo sem
Einstigi, ForvaSi, Nátthagi, Ófcera og Sjónarhóll, því að þau hafa
tæplega breiðzt út sem örnefni, heldur á ég við nöfn svo sem Brimnes,
Búrfell, Kaldbakur og SvalbarS.
Búrfell er gamalt fjallsnafn og mun vera hið algengasta á öllu
landinu. Á norðvesturskaganum eru að minnsta kosti 10 eða 12 fjöll,
sem svo heita. Gamalt nafn og dreift um allt landið erogArnarbæli
eða Arnarbýli. Þar sem það hlýtur að vera gamalt þar vestra, hét það
Arnarbýli (Arnarbýlisdalur bæði á Barðaströnd og í Dýrafirði, þar
sem nú heitir Kirkjubólsdalur), en annars Arnarbceli eins og almennt.