Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Blaðsíða 111
113
göng inn í húsin eru öll hellulögð. Um 1 m innan við útidyrakampa
er þröskuldur, gerður af tveimur steinum á röð, og verður þarna
20 sm hátt þrep, niður í göngin. Þarna hefur útidyrahurðin verið.
Þrjá metra inn frá kampsteinunum verða dyr til beggja handa;
liggja þær til vinstri inn í bdSstofu. Baðstofan (I) er 3,20—3,40
m að lengd og 2 m að breidd að framanverðu, en breikkar um
mitt hús og er mest 2,50 m innst. Hellulagning ganganna heldur
áfram inn eftir gólfi. Við suðurvegg hafa verið 2 rúm og er fram-
brún þeirra mörkuð af þremur stórum steindröngum, 30—35 sm
háum, sem standa þar í gólfinu. A þeim hafa rúmstokkar hvílt.
Fremst við norðurvegg hefur einnig verið rúm, minna en hin, en
innan við það autt gólf, svo að hægt hefur verið að láta borðkríli
eða því um líkt standa þar.
Inn úr vesturgafli baðstofu eru dyr inn í rúmlega 1 m víð göng,
sem beygja til norðurs og víkka, svo að þau verða að aflöngu húsi
(II), sem virðist hafa verið búr, um 5 m að 1. og mest 1,60 m að
br. innst. Þarna er ekki önnur ummerki að sjá en steina marga í
gólfi við vesturvegg, sjálfsagt undirlag undir ílát, kistur eða bekki.
Þetta hús snýr þvert á baðstofuna.
Sama gerir hús III, sem gengið er í innst úr göngunum til vinstri.
Eins og bakhúsin yfirleitt stendur það allmiklu hærra en fram-
húsin, sbr. skurð af göngum. Þetta hús er 4 m að 1. og mest
1,75 m að br. Við norðurstafn voru nokkrir kljásteinar, og er lík-
legt, að þarna hafi vefstóll staðið, enda ekki rúm fyrir hann í
baðstofu.
Framhúsið til hægri (IV) er 3 m að 1. og mest 1,75 m að br.
Engar hellur eru þar í gólfi, en aska allmikil, einkum við miðjan
framvegg. Framarlega í dyrum er steindrangur fyrir þröskuld. Ef til
vill er þetta eldhús, því að ekki er annar staður líklegri í bænum,
en hlóðir fundust hvergi né heldur nein örugg merki eldamennsku
önnur en aska, sem jafnt er dreift um öll gólf.
Bakhúsið til hægri (V) er rúmlega 4 m að 1. og 1,50 m að br.,
töluvert hornskakkt við hin húsin. Ekki sjást þar önnur manna-
verk en steinar, sem með vilja eru settir niður við veggi á nokkrum
stöðum.
Allir veggir eru hlaðnir úr grjóti og óhrundir með öllu. Hefur
mjög fljótt fokið í öll hús, enda í öllum húsum og göngum meira
og minna af vikri frá gosinu 1693, sumt hnefastórir hnullungar.
Um þetta efni vitna ég til greinargerðar Sigurðar Þórarinssonar
hér á eftir.