Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Síða 22
26
hennar Keldeyrardalur. Kelda getur þó reyndar verið gamalt nafn
árinnar, sama orð og kelda í mýrum, eða þá dregið af lýsingarorð-
inu kaldur, og við hana kennd Keldeyri og svo aftur Keldeyrará,
myndað svipað og Kvíslárdalsá. Stegla fellur úr Stegludal, sem er og
kallaður Stegluárdalur (en á uppdrættinum kallaður Stekkadalur).
Þar er auk þess stór steinn kallaður Stegla, og mun hann eiga nafnið
með réttu. Það getur verið dregið af orðinu stagl. Um steininn er
hlaðinn grjótgarður. Við þenna stein munu þá vera kennd bæði
Stegluá og Stegludalur ellegar aðeins Stegludalur, og síðan Stegluá
eða Stegludalsá stytt og orðið úr því Stegla. Aanöfn af þessu tæi
eru nokkuð skyld gælumyndum margra kvennanafna, svo sem Magga,
Sigga og Þura í staðinn fyrir Margrét, Sigríður og Þuríður.
Fjallanöfn, sem eru stýfð að aftan, eru fjöldamörg, en með þau
er víðast farið öðruvísi en með nöfn ánna og þeim fengin karlkyns-
mynd, annaðhvort sterk eða veik. Meðal hinna fáu fjalla á norð-
vesturskaganum, sem nafngreid eru í Landnámabók, eru Ryta-
gnúpur sunnan við Aðalvík. sem nú heitir Rytur eða Ritur, og svo
Geirólfsgnúpur, þar sem mætast ísafjarðar- og Strandasýsla. Hann
kvað vera kenndur við Geirólf nokkurn, sem þar bjó á landnámsöld.
Núpurinn er nú kallaður Geirhólmsnúpur þar á slóðum, en fjallið
fyrir ofan hann Geirhólmur. I máldaga Staðarkirkju í Gunnavík frá
árinu 1397 er hann kallaður Geirólfur, en í bréfum frá árunum 1473,
og 1475 þegar Geirhólmur. Þar undir núpnum heitir og Hólmstá
og Hólmsvogur, þó að enginn hólmur eða hólmi sé nærri. Þessi nöfn
munu helzt vera stytt úr Geirhólmsgnúpstá og Geirhólmsnúpsvogur
og því stýfð með tvennu móti. Þannig hefur þar myndazt smáflokkur
af hó/m-nöfnum, sem ekkert hafa með neinn hólm að gera. Það má
telja víst, að þau mundu leiða menn algjörlega villt, ef engin heimild
væri til um gömlu mynd nafnsins og uppruna þess. Það má geta
nærri, að svipað muni hafa gerzt víða á landi. Til dæmis mundi fáum
mönnum geta komið í hug, að Tálknafjörður sé kenndur við nokkuð
annað en Tálkna, sem er nafnið á múlanum milli hans og Patreks-
fjarðar, ef ekki væri frásögn Landnámabókar, að fjörðurinn heiti eftir
Þórbirni tálkna, sem þar nam land. Það er því senilegt, að fjalls-
nafnið Tálkni sé stytt úr Tálknafjarðarmúli eða svipaðri nafns-
mynd.
Styttingar af þessu tæi eru flestar við sjóinn. Það munu því helzt
hafa verið sjómenn, sem fóru þannig með nöfn fjalla. Sjómenn hafa
fjöllin fyrir mið, en vilja helzt hafa stutt nöfn á miðum sínum. Þeim
hefur og hætt við af hjátrú að vilja forðast almennu nöfnin. Því eru