Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Page 24
28
vík á Hornströndum — og eins hjá Flateyri í Önundarfirði — kallað
Hvannakrar, en þetta nafn hefur ekkert með kornrækt að gera og er
frekar vottur þess, að hún hafi engin verið á þeim slóðum um það
leyti, sem nafnið var gefið.
Menn hafa gizkað á, að mörg eða flest land-nöfn á Islandi séu
einnig dregin af akuryrkju, því að land muni þar vera hið sama og
akurland. En það hlýtur að vera misskilningur. Hin almennasta merk-
ing orðsins í bæjarnöfnum og örnefnum mun vera ,búland’. I akur-
yrkjulöndum geta þetta einkum verið akrarnir, en ólíklegt er, að
svo hafi verið nokkurstaðar á Islandi. Þar hlýtur búlandið fyrst og
fremst að vera beiti- eða slægjulandið. I vestfirzku örnefnunum er
land víðast hvar beitarland, líkt og hús er um allt landið notað mikið
í staðinn fyrir beitarhús. Því ná land-nölnin miklu lengra norður en
afeur-nöfnin, allt norður á Hornstrandir, þar sem kom mun aldrei
hafa verið ræktað. Land virðist þar vestra vera kallað mest annað-
hvort til aðgreiningar frá gróðurlitlum eða gróðurlausum spildum,
þar sem enginn hagi er, ellegar þá vetrarbeitarland, enda heitir víða
Veturlönd (eða Vetrarlönd). Mér töldust 10 staðir með þessu nafni.
A einstaka stað heitir þó Stekkjarland og Engjalönd. Á Breiða-
firði eru þar að auki margir eyjaklasar kallaðir íand-nöfnum, svo
sem Barmalönd, Helgeyjarlönd og Látralönd. Þetta getur átt rót sína
að rekja til þess, að þarna voru margar eyjar hafðar fyrir beitiland,
og það ekki sízt á vetrum.
Meiri líkindi en til þess, að land eigi við akuryrkju, virðast vera
til þess, að þannig sé með gerði, þar sem það er haft í bæjarnöfnum
og örnefnum, og að það merki þar hið sama og akurgerði eða girtur
akur. Á norðvesturlandi er þó varla kallandi, að gerði-nöfn séu til,
að undanteknum helzt fáeinum nöfnum, sem annaðhvort eru æva-
gömul eða þá ung. I Dýrafirði er bær, Gerðhamrar að nafni. Fyrri
liður nafnsins mun þó ekki vera nafnorðið gerðí, heldur sögnin að
gerða, sem merkir svipað og að girða. Egill Skallagrímsson kallaði
brýnnar gerði-hamra grímu grundar, það er hamrana, sem girða um
þvert andlitið. Hjá Gerðhömrum eru í fjallinu gangbríkur, sem eru
taldar vera líkar girðingum. Af þeim mun bæjarnafnið vera dregið.
Nafnorðið, sem svaraði þessari sögn að gerða þarna vestra, hefur
þó ekki verið gerði, heldur girði. Eg fann það í örnefnaskránum að-
eins í Vestur-Barðastrandar-i og Vestur-Isafjarðarsýslu, og auk þess
aðeins, á 9 stöðum, í samsetningunni Girðisbrekka. Þetta nafn merkir
brekkur, sem mynda einskonar garð eða girðingu, oftast líklega