Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Síða 29
33
firði, en á sama svæði er ekkert býli með þessu nafni heldur, þó að
þau hafi verið 11 tals í hinum hlutum norðvesturkjálkans.
Örnefnin geta og veitt ýmsar upplýsingar um merkingu bæjar-
nafna. A eitt dæmi, orðið land, hefur þegar verið bent að framan.
Þannig mun og fara með fröð. Þetta orð sýnist hafa verið notað þar
vestra að minnsta kosti í þrennri merkingu. í austurhluta Barða-
strandarsýslu er það helzt sama og heimreið, sunnarlega í Isafjarðar-
sýslu sama og gerði og norðar í henni girðing, en í örnefnunum í
Vestur-Barðastrandarsýslu virðist tröð merkja bæði heimreið og gerði.
Heimildir mínar hrökkva þó ekki til, að þetta verði sæmilega ljóst.
1 Austur-Barðastrandarsýslu, þar sem tröS virðist vera notað ein-
göngu um heimreiðina, er ekkert býli með þessu nafni.
Sumstaðar kunna örnefni að gefa upplýsingar um merkingu bæjar-
nafna, sem flestum munu þykja þurfa engrar skýringar við. Til
þess skal eg nefna bæjarnöfnin Kvíar í Jökulfjörðum og Bœir á Snæ-
fjallaströnd. Kvíar eru kenndar við kletta, sem eru við sjóinn skammt
frá bænum, en ekki við neinar fjárkvíar. Klettarnir munu aftur hafa
fengið Kuía-nafnið líkt og smávíkurnar, sem eru umluktar klettum
og kallaðar Básar eða Grindur. I landi Kvía er auk þess stór hvilft,
sem kölluð er Kví. Bœr er merkilegt bæjarnafn og tæplega skýrt til
fulls. Ennþá einkennilegri er þó fleirtalan Bæir sem nafn á einstök-
um bæ. Bærinn á Snæfjallaströnd, sem svo heitir, er eini bærinn
með þessu nafni á landinu. Milli Sveinseyrar og Stóra-Laugardals
í Tálknafirði eru niðri við sjóinn klettar, sem kallaðir eru Bceir, og
í sjálfu landi Bæja heitir Tortlág og stór steinn, sem stendur þar,
Torflágarbcer. Eg skal ekki bollaleggja um það, hvernig standa muni
á þessum nöfnum kletta og steina, hvort þau séu valin vegna lögunar
þeirra eða af því, að menn töldu þá vera bústaði trölla eða huldu-
fólks, eða þá af hvoru tveggja, en mér þykir sennilegast, að Bæja-
bærinn sé kenndur við þesskonar bœi.
Þar sem örnefni eru orðin að nöfnum bæja og eru áfram örnefni
um leið, eru bæirnir samnefndir þeim stöðum, sem þeir draga nöfnin
af. Þetta hlyti að valda allskonar misskilningi, ef ekkert væri gert
þeim til aðgreiningar. Eg held þó, að slík algjör sameign á nafni sé
varla nokkurstaðar til, þó að víða sýnist svo vera. Því að á einni
aðgreiningunni mun ætíð vera kostur, þó að aðrar bregðist. Það er
viðbót greinisins við örnefnið. Melar í Hrútafirði, syðsti bær í Stranda-
sýslu, eru kenndir við mela nokkra í nánd, og í örnefnaskránni segir,
að þessir melar heiti Melar. En þeir eru samt kallaðir svo sem í sömu
andránni Melarnir. Þessi viðbót greinisins er svo almenn, hvort sem