Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Qupperneq 40
44
br., 30 að þykkt, með gati aftast; neðan á kolunni gengur upphleyptur
oddur frá skafti og fram á blað. Þjms. 9257 (4. mynd).
2. Bergþórshvoll, Vestur-Landeyjahr., gripir fundnir við rannsókn
Matthíasar Þórðarsonar á bæjarstæðinu: Grýtubrot 3 af sömu grýt-
unni að því er virðist; tvö af brotunum eru úr barmi, og sést efst á
öðrum þeirra dálítill hnúður að utanverðu; grýtan hefur verið um
220 í þvm., skálmynduð, óvenju þunn, 7—10, og barmurinn þynnst-
ur og hvass. Stærsta brotið er 57—85 X 8. Grýtubrot ljósgrátt, hvelft,
44—-66X17. Grýtubrot dökkgrátt, hvelft, 15—35X19- Klébergsbrot
ljósgrátt, 30—57 X 14, líklega af koluskafti. Öll brotin komu 30. 8. ’27.
3. Berjanes gamla, Vestur-Landeyjahr., blásið bæjarstæði: Grýtubrot
ljósgrátt, 18—117x14, hvelft; grýtan virðist munu hafa verið um
290 í þvm. Þjms. 11281.
4. Fornt bæjarstæði hjá Einhyrningi á Grænafjalli á Fljótshlíðarafrétti,
líklega því, sem talið hefur verið Bólstaður, bær Sighvats rauða land-
námsmanns, sbr. Árbók 1886, bls. 56—59: Klébergsbrot ljósgrátt,
ókennilegt, 60—60x20. Þjms. 4920.
5. Fornt bæjarstæði á Kápu á Almenningum fyrir norðan Þórsmörk,
þar sem ætla má, að verið hafi bær landnámsmannsi'ns Steinfinns
Reyrketilssonar, sbr. Árbók 1925—26, bls. 49—51, og rit þau, sem
þar er til vísað: Snældusnúður hálfur, Ijósgrár, 25x11. Þjms. 4313.!)
Snældusnúður hálfur, gráblár með gulum eitlum, 36x17. Þjms. 9084.
Grýtubrot blágrátt, hvelft, 63—116x17. Þjms. 1086. Grýtubrot hvelft
og líklega úr sömu grýtu, 48—104 X 18. Þetta brot er úr barmi og
hefur hann verið sléttur og flatur ofan; gegnum hann stendur járn-
naglabrot, og hefur eyra (úr járni) verið neglt á, sbr. Rygh 729. Þjms.
1098. Grýtubrot 2, grágræn, 62 og 74 að 1., hvelfd. Þjms. 2433. Grýtu-
brot 2 gráblá, virðast úr sömu grýtu, hið stærra 85—130x20, lítið
eitt hvelft og mun vera úr mjög stórri grýtu, hefur í annan endann
brotnað um borað gat. Hitt brotið er miklu minna. Þjms. 9081 a—b.
Grýtubrot ljósgrænt, 40—85x15, hvelft. Þjms. 9082. Klébergsbrot
dökkgrátt, ókennilegt, mesta haf 51. Þjms. 9083.
6. Engidalur, staður á Þórsmörk: Snældusnúður harður, grár með mó-
rauðum eitlum, 37x20. Með honum fundust m. a. svínsjaxlar. Kom
27. 11. ’44.
7. Múlakot, Fljótshlíðarhr.: Snældusnúður, eitlóttur, skemmdur, um 35
X13. Aðeins sagður fundinn „þar eystra“. Þjms. 3171.
1) í skýrslum safnsins stendur aðeins, að 4313 sé fundinn „á Þórsmörk
í fornum bæjarrústum", en af því að Kálund hefur fundið hann og gefiði
má telja víst, að hann sé frá Kápu, sbr. Isl. beskr. I, bls. 261.