Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Síða 87
89
III. TÚNGARÐAR OG FORNAR HÚSARÚSTIR
Eins og meðfylgjandi kort af Lækjamótstúni sýnir, hefur á því
verið óvanalega mikið af fornum túngörðum og húsarústum, svo að
telja má þar 12 gamiar rústir, er allar munu af peningshúsum,
auk þrennra kvíarústa. Það er einnig eftirtektarvert, að görðunum
er þannig fyrir komið, að afstaðan sýnir í aðalatriðum aldursröð
þeirra. Húsarústirnar eru einnig þannig settar, að líklegt má telja,
að staðarval þeirra standi í nánu sambandi við margendurtekna
útgræðslu túnsins og girðingar um þá ræktun. Á kortinu hefi ég
merkt garðlögin áframhaldandi töluröð eftir sennilegri aldursröð.
Nr. 1 er þá garðlag það, sem næst liggur gamla Lækjamótsbæn-
um. Mun þar, sem nú heitir Kinnin, vera fyrstu frumdrög til Lækja-
mótstúns. Þar mætti gera ráð fyrir, að þeir Þorvaldur víðförli og
síðar Þórarinn spaki hefðu staðið að slætti, en ekki verður vitað,
hve túnútgræðslunni var þá langt komið eða hvort garðar voru
gerðir. Allur syðri hluti túnsvæðis 1, sunnan og neðan hinnar fornu
heimreiðar, hefur verið kargaþýfi, og hélzt svo fram yfir 1835, en
snemma virðist mönnum hafa verið annt um þessa móa eftir legu
1. garðlags að dæma. Næst eftir þá girðingu má gera ráð fyrir, að
túnið hafi verið aukið til norðurs og þá gert garðlag 2. Það hólf
virðist frá náttúrunnar hendi hafa verið smáþýfðir melamóar með
sléttum flesjum; á milli og á kafla slétt valllendisbrekka þar, sem
nú heitir Einarsdagslátta. Er þarna enn í dag einn hinn jarðvegs-
dýpsti og grasgefnasti hluti túnsins. Garðarnir um þetta túnhólf
hafa verið mjög efnismiklir. Hefur að minnsta kosti sums staðar
verið notað þar grjót í undirstöðu, en aðalefni garðsins jarðvegur,
er tekinn var á staðnum. Garðurinn norðan við þetta hólf, merktur
2, er eini innantúnsgarðurinn, sem eftir stendur óhreyfður. Hann
er um 3 m þykkur að neðan og 1 m og þar yfir að hæð og svo
jafn og reglulega lagður, að líkist því, að hann hefði verið snúru-
mældur og snidduhlaðinn fyrir nokkrum áratugum. Þessu túni hafa
fylgt hinar miklu húsarústir, er voru á hólbrún Einarsdagsláttu.
Næst má ætla, að garður 3 hafi verið gerður. Er nokkur hluti hans
framlenging á garði 2, og myndar sá hluti hans undirstöðu að nú-
verandi vallargarði við Gíslalaut. Sáust svo merki hans sumstaðar
allumfangsmikil suður milli núverandi fjóss og bæjar og ofan í garð
1. Túnauka þessum mun Stakhúsið hafa fylgt og sennilega húsin
austan við núverandi lambhús. Næst má gera ráð fyrir, að gert