Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Qupperneq 90
92
enda bendir lagið á garði 2 til þess, að svo hafi hann verið gerður
og lögun hans hafi haldið sér öldum saman án verulegra skemmda,
þótt eðlilega hafi hann sigið mikið og breikkað út á svo löngum
tíma. I aðalvallargarðinn, sem gerður var upp seint á síðastliðinni
öld og enn stendur lítt haggaður, hafa þó að miklu verið notaðir
mýrstungnir kvíhnausar. Þeir voru fluttir í torfkrókum langan veg.
Sýnist nú, að þeim köflum garðsins, sem gerður er úr kvíhnausum,
sé meiri hætta búin af skemmdum en hinum, þar sem móajarð-
vegur var notaður og snidduhlaðið.
Það má heita einkennilegt, eins mikla ástundun og fyrri alda
bændur á Lækjamóti hafa lagt á túnvörzluna, að túnið skyldi alltaf
hafa verið látið óvarið á þeirri hlið, sem að keldunni vissi. Hefur
hún þó aldrei verið nothæf vörn fyrir ágangi austan frá. Þó var
þar nærtækt miklu betra efni til garðgerðar en uppi á þurrlendri
móajörðinni. Ef til vill hefur minni áherzla verið á þetta lögð vegna
þess, að um þetta svæði sást heiman frá gamla bænum, en þar,
sem garðarnir voru gerðir, var mestallt í hvarfi heiman að. Hitt
gæti einnig átt sér stað, að þarna hafi verið garður til forna, en
hann sé nú svo gjörsamlega sokkinn í votlendið, að hans sjáist
hvergi staðar.
Ég hefi áður getið þess, að engjar hafi verið fremur erfiðar á
Lækjamóti, mestallt flóa og kelduslægjur og heim að flytja vota-
band að miklu um langar og illfærar leiðir. Bændur hafa því séð,
að það var enn meiri nauðsyn hér en víða annars staðar að auka
túnræktina, enda hafa margar kynslóðir lagt þar myndarlega
hönd að verki, þegar miðað er við verkfærakost og venjur þeirra
tíma. Það einkennir þessar ræktunaraðferðir, að bygging nýrra pen-
ingshúsa eða færsla þeirra hefur að jafnaði verið notuð til þess að
auðvelda þessar framkvæmdir. Það sjálfræktast jafnan nokkuð
út frá peningshúsunum og það létti flutning á áburði, sem ýmist var
þá borinn á mannsbaki eða fluttur á reiðingshestum. Sömu ástæður
munu liggja til þess, hvernig fram undir síðustu tíma peningshús-
um hefur verið peðrað sitt á hvað út um allt tún á fjölda jarða,
þótt garðlögin muni óvíða sýna þetta eins ljpslega og á Lækja-
móti.
Líkur benda einnig til þess, að eitthvað hafi verið jafnað úr
melamóunum jafnóðum og túngræðslan færðist út. Annars mundi
Lækjamótstún hafa verið öðruvísi þýft og þýfðara en það var,
áður en síðari tíma sléttun hófst á því, sem mun eitthvað hafa byrjað