Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Page 121
123
væru yfirgefnir í bili. En hafi svo verið, þá hefur Skarð verið í byggð
aítur mjög bráðlega, eins og enn má betur sýna.
I nýnefndum máldaga kirkjunnar í Skarði, 1337, er sagt, að tekju-
eign („portio ecclesiæ“) kirkjunnar um 7 ár, hafi orðið 3 merkur.
Verða það 20,6 álnir til jafnaðar árlega. Má telja það vonum fram-
ar, og mikinn afgang af kostnaði við kirkjuna, lýsing hennar, ásamt
sakramentisbrauði og víni, sem allt var þá miklu oftar og meira notað
en nú gerist.1
Nú má segja, að Vilchin biskup hafi ekki sjálfur komizt yfir að
heimsækja hverja kirkju, og séu því sumir máldagarnir afrit frá fyrri
árum. Hér sé því ekki treystandi efalaust á ártalið. En þá er þó þrennt
til stuðnings og álita:
1. Biskup gat látið umboðsmenn taka máldagana, þar sem hann
kom ekki sjálfur.
2. Eflaust er máldagabók Vilchins rituð árið 1397, því að þar er ár-
talið skráð greinilega: „Anno Domini millisimo CCC°XC0VIJ0“.
3. Þar sem nú máldagi þessi er vafalaust frá þessu ári, vill þá
nokkur maður halda svo merkan biskup þann aula, að hann
(eða ritari hans) bókfærði máldaga eyðilagðrar kirkju, góðan
og gildandi, án athugasemda? Og ekki afræktrar kirkju í bili,
heldur kirkju þeirrar, sem farizt hefði þá nýlega með svo eftir-
minnilegum hætti, svo að kalla í nágrenni við Skálholt.
Samkvæmt því, sem að framan er sagt, verð ég að álykta:
f fyrsta lagi, að Skarð hafi ekki lagzt í eyði ári lengur í gosinu
1389—90, nema ef það kynni að vera rangt árfært. Hitt er vel skilj-
anlegt, að fólkið hafi flúið þaðan og úr fleiri bæjum í kring, meðan
mestu ósköpin dundu yfir, og ef til vill flutt úr þeim hið lauslega og
fémæta. Gat það orðið nóg efni í fullkomna eyðileggingarfrétt, í
fjarlæg héruð, fyrir annálaritara þar, og þá oft mikið ýktar fréttir.
I öðru lagi tel ég mega fullyrða, að Skarð, Ketilsstaðir og líklega
Tjaldastaðir hafi ekki eyðilagzt að öllu leyti fyrr en í gosinu, sem
orðið hefur hálfri öld síðar, nálægt 1440. — Árið ekki fullvíst og
1) Tekjur Skarðskirkju sýna það, að þá hafa einhverjir bæir verið í
byggð í sókninni. Næsta kirkja við Skarð, í Tröllaskógi, er ekki nefnd í
fornum heimildum. En leifar kirkjustæðis, kirkjugarðs og mannabeina
sanna munnmæli um kirkju þar. Líklega hefur kirkjan lagzt af fyrir
1200 (eins og kirkjan í Þjórsárdal?). Hin nágrannakirkjan, í Næfurholti,
var í notkun („afsköffuð“ 1765). Tekjur hennar sjást ekki á þessu tíma-
bili. En til samanburðar við tekjur Skarðskirkju má nefna meðalárstekjur
hinna næstu kirknanna á líku tímabili: Á Leirubakka 32 áln., í Klofa 26,6
áln. og á Keldum 144 áln.