Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Blaðsíða 16
20
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Tyrkjann. 1 míð'nafninu Húsið hefur hins vegar geymzt minning um,
að þetta hafði í upphafi verið hús. Það hefur verið ótrúlega lítið.
2,20 m að lengd og 1,20 m að breidd. Veggirnir eru hlaðnir úr grjóti
í 1 m hæð ogistanda vel að innan, lítið eitt fláandi upp eftir, þ. e. hall-
ast út. Veggjarþykktin hefur verið um 1 m, eftir því sem næst verður
komizt. Húsið hefur snúið frá austri til vesturs, þó lítið eitt tijl norð-
vesturs. Vesturgafl hefur verið úr timbri og dyr á að norðan. í þeim
hefur verið eins konar stétt af smásteinum. Við syðri langvegginn
lágu tvær stórar og myndarlegar hellur, og hefur hin fremri náð
alveg fram undan þilstafninum, sem beinlínis virðist hafa hvílt á
henni. Eitthvað virðist hafa hvílt á þessum hellum við suðurvegg-
inn, t. d. borð eða bekkur. Fremri hellan er 15 sm þykk, og álíka hátt
þrep er í dyrunum við hliðina á henni, enda er gólfið þetta lægra en
hlaðið fyrir framan.
Fleira er varla nauðsynlegt að taka fram í lýsingu þessa húskrílis.
Eftir rannsóknina fylltum við tóftina og færðum allt í samt lag aftur.
Ég kom þar aftur í nóvember 1955, og var þá varla hægt að sjá, að
nokkurn tíma hefði verið við henni rótað.
Eins og áður getur, fannst ein látúnsplata með stöppuðu verki
þar sem efst varð vart við mannvistarleifar. Þegar neðar dró, fjölg-
aði fundnum hlutum, svo að lokum urðu þeir undra margir. Skal
þeirra nú getið hvers um sig1):
1. Ferskeytt plata úr næfurþunnu látúni, 2,4 sm á hlið, með stöppuðu verki,
perluband nær brún á alla vegu, rós í miðju. Göt á öllum hornum og tvö í
miðju, öll klunnalega stungin og skæld. Þessi plata er stærst af öllum plöt-
unum, þegar frá er skilin nr. 15. Plöturnar hér á eftir eru allar stappaðar
eins og þessi.
2—3. Tvær ferskeyttar plötur, 2 sm á hlið, krans í miðju, rósetta með átta blöð-
um umhverfis, brúnir sléttar. Tvö gagnstæð göt við brún, látúnstittur í öðru.
Plöturnar virðast stappaðar í sama móti. Innan í annarri plötunni var lag
af fitu eða vaxi með mikilli spanskgrænu.
4 — 6. Þrjár ferskeyttar plötur, 2 sm á hlið, svipaðar nr. 2 — 3, en brúnir með
tenntum bekk. Líklega stappaðar í sama móti allar þrjár.
7. Ferskeytt plata, 1,9 sm á hlið, svipar mikið til nr. 4 — 6, með áttablaða rósettu
og tenntum bekk, en þessi hefur ekki krans í miðju, heldur kúpta bólu, blöðin
sjálf einnig kúptari. Látúnstittir tveir í gagnstæðum götum.
8 — 9. Tvær ferskeyttar plötur, 1,6 sm á hlið, með rósettu og perlukanti, sem
hvort tveggja minnir mjög á nr. 7, þótt smærra sé. Eitt gat í miðju. Plöt-
urnar virðast stappaðar í sama móti.
3) Ég þakka dr. Sigurði Péturssyni, að hann greindi fyrir mig þráðarleifar
og beinperlu. Atvinnudeild Háskólans greindi silfur- og tinhluti og vaxmola.