Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Page 18
22
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
10. Ferskeytt plata, 1,5 sm á hlið, lík nr. 8 — 9, en hærra upphleypt í miðju og
jafnframt óskýrar mótuð, nagli i gati í miðju.
11 — 12. Tvær ferskeyttar plötur, 1,3 sm á hlið, uppistaða skrautverksins krans,
en stílfærð, þrískipt blöð teygjast út á öll horn. Gat í miðju, en auk þess tvö
hirðuleysislega gerð göt á hvorri plötu. Plöturnar virðast stappaðar í sama
móti.
13. Ferskeytt plata, 1,2 sm á hlið, ekki ólík nr. 11 — 12, en þó frábrugðin, bólan
í miðju t. d. með geislum út frá gatinu.
14. Ferskeytt plata, 1,6 sm á hlið, óskýrt ljónsandlit stappað á, enginn sérstakur
bekkur umhverfis, gat í miðju.
15 — 16. Tvær ferskeyttar plötur, 1,6 sm á hlið, sýna greinilega þrjá turna, gat
í miðju. Áreiðanlega stappaðar í sama móti.
17. Ferskeytt plata aflöng, 1,8 X 2,8 sm, gegnskorin, perluband á umgerðinni,
innan í henni hálfmáni og í bug vangamynd af skeggjuðu mannsandliti, karl-
inn í tunglinu. Göt i öllum hornum, og í einu þeirra leifar af línþræði, en í
öðru snúinn þráður af seymi.
18 — 19. Tvær aflangar plötur, önnur óheil, en virðast hafa verið eins. Hin er
2,8 sm að lengd og 1 sm að breidd. Á henni eru þrír upphleyptir hringar í
röð og tennt bönd á milli, göt fyrir titti gegnum tvo hringana.
20 — 21. Tvö brot, sem bæði geta verið endar af sams konar plötu og nr. 18 — 19.
Við annað brotið loðir ögn af bláum linþræði.
22. Stjörnulöguð plata með fjórum oddum, 9 mm milli odda, gat í miðju.
23. Ferskeytt plata og lítið eitt aflöng, 7x11 mm, oddur lítill eða tangi út úr
annarri skammhlið og samsvarandi klauf upp í hina, gat í miðju og í lín-
þráður.
24. Óreglulega kringlótt plata óheil, mesta haf 1,6 sm, efst lítið en skýrt manns-
andlit og fellingar niður frá, sem virðast eiga að tákna kraga eða annað á
fatnaði. Ekkert gat sjáanlegt.
25. Gegnskorin plata, nánast kringlótt sem krans eða sveigur, þvermál mest
2,2 sm, hjarta innan í kransinum, tvö gagnstæð göt til festingar ofan og
neðan við hjartað.
26. Sveigmynduð plata, og stendur sveigurinn saman af sex litlum kringlum
umhverfis stórt gat í miðju, 1,8 sm í þvermál. Tvö lítil gagnstæð göt til fest-
ingar og látúnstittir í báðum.
27. Sveigmynduð plata, svipuð nr. 26, en minni, 1,3 sm í þvermál. Tvö gagnstæð
göt til festingar.
28. Sveigmynduð plata, mjög lík nr. 27 og jafnstór henni; ekki munu þær tvær
stappaðar í sama móti.
29. Kringlótt doppa, 1 sm í þvermál, perluband umhverfis, gat í miðju til fest-
ingar og línþráður í.
30. Kúpt og h&tt hvelfd doppa, 6 mm á hæð, með fjórum hornum, sem teygjast
eins og totur út frá opi hennar. Ekkert skrautverk né göt til festingar.
31. Lauf með stöppuðu skrautverki, ekki alveg heilt, mesta haf 1,8 sm, gat til
festingar efst. Með þessu laufi fannst töluverð viðja af hvítum linþráðum.
32 — 33. Tvö látúnslauf, annað óheilt, virðast hafa verið eins, mjó tunga með gati
efst, en þar niður frá breiðist laufið út eins og blaðka, hæð 1,4 sm.