Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Page 23

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Page 23
KAPELLUHRAUN OG KAPELLULÁG 27 ekki séu þessar plötur eins í 'laginu. En platan frá Skálholti er sem sagt alveg sömu tegundar og hinar. Hún fannst í suðurstúku dóm- kirkjunnar, enda sjálfsagt frá miðöldum. Ekki hefur gengið greiðlega að finna alveg sambærilega hluti í söfnum erlendis. Plötur sem þessar eru svo lítiif jörlegar, að menn færa þær yfirleitt ekki söfnum, þótt þeir finni þær, nema ef vísinda- menn finna þær við rannsóknir. Nokkra fundi má þó nefna. Þar sem Hamarkaupangur var fyrrum við Mjörs á Heiðmörk hefur fundizt ýmislegt smádót, sumt sennilega frá málmsmiðsverkstæði, og minnir margt af því ekki lítið á Grindavíkurfundinn yfirleitt.1) Þó er sann- ast sagna, að ekkert er þar, sem er eins og hinar þunnu stöppuðu látúnsplötur. Slíkar plötur hafa hins vegar fundizt í nokkrum mið- aldafjársjóðum, sem á sínum tíma hafa verið fólgnir í jörðu í Dan- mörku og víðar, raunar þá úr dýrum málmum. Hinn stærsti þessara sjóða fannst í Smedegade í Slagelse, talinn frá um 1385, því miður enn óútgefinn. Nokkra þýzka fundi með stöppuðum plötum hefur mér einnig verið bent á, en ekki heldur er hægt að vitna til rita um þá.2) Fyrirspurnir mínar um slíkar plötur á Englandi hafa ekki enn borið neinn árangur. Þegar á allt er litið, hefur mér ekki tekizt að hafa upp á nákvæmum erlendum hliðstæðum við Grindavíkurplöt- urnar. Sennilega mun maður þó einhvern tíma rekast á þær. Þó að svo lítið fari fyrir plötum sem þessum í fornfræðaritum, er með öllu ljóst, til hvers þær voru notaðar. Allar hafa þær verið ætl- aðar til að festa á klæðnað, líklega einkum kvenfatnað. Um 1300 varð aigengt að sauma gull- og silfurplötur eða jafnvel peninga á föt, en alþýða manna hefur þó orðið að bjargast við ódýrari efni.3) Hvað eftir annað leggja konungar bann við þessu óhófi. Réttarbót Hákonar konungs Magnússonar frá 21. okt. 1314 er fróðleg um þetta efni: „Yér höfum undirstaðið um klæðaskurði og breytni þá, sem menn gera og hafa á klæðum sínum og menn dirfast í landinu móti vorum vilja og sjálfra sinna þarfinda, að það er meir gjört til kostnaðar og U Ég þakka safnvörðunum Mörtu Hoffmann við Norslc folkemuseum og T. Bleken-Nielsen við Heiðmerkursafnið á Hamri fyrir svör við fyrirspurnum mínum um þessi efni í Noregi. Sjá Sigurd Grieg, Byfunnene pá Stor-Hamar. Hedmarksmuseet og Domkirkeodden, Arsmelding 1939 — 41, bls. 3 o. áfr. 2) Tage E. Christiansen, safnvörður í Kaupmannahöfn, hefur skýrt mér frá þessum fundum öllum, og kann ég honum þakkir. 3) Sjá t. d. Poul Nþrlund, Klædedragt i Oldtid og Middelalder, Nord. Kult. XV:B, bls. 68.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.