Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Qupperneq 33
MANNAMYNDADEILD ÞJÓÐMINJASAFNSINS
87
af þeim og hengja upp í kirkjunni. Þá voru og nokkrar teikningar
eftir Sæmund Hólm, Sigurð Guðmundsson málara o. fl. Á árinu bætt-
ust svo fleiri myndir við, fiestar steinprentaðar eða gerðar eftir eldri
myndum, svo að í lok ársins voru komnar 72 myndir á skrá.
Um leið og söfnunin var hafin, voru send út allmörg bréf til ýmissa
manna og þeir beðnir að styðja söfnunina og senda myndir. Þetta
virðist hafa borið nokkurn árangur. En upp frá þessu eru það mest
ljósmyndir, sem borizt hafa, og hafa þær yfirleitt verið gefnar safn-
inu, og margt hefur komið frá dánarbúum, sem erfingjar hafa af-
hent. Auk þess.hefur Þjóðminjasafnið keypt talsvert af mannamynd-
um, einkum gamlar málaðar og teiknaðar myndir, og þá um leið vafa-
laust forðað mörgu frá að ónýtast eða týnast.
Söfnuninni hefur verið haldið áfram jafnt og þétt frá ári til árs
með þeim árangri, að í árslok 1954 voru 20947 myndir komnar á skrá,
og hefur verið.gerð sérstök spjaldskrá með nöfnum yfir þær. — Eins
og áður er sagt eru í safninu málaðar, teiknaðar og steinprentaðar
myndir, en ljósmyndir þó langflestar. Venjulegum prentmyndum af
mönnum hefur ekki verið safnað reglulega, en allmargar góðar prent-
myndir hafa þó slæðzt með í safnið einkum nú hin síðustu ár. Þá eru
og nokkrar höggmyndir, bæði brjóstmyndir og lágmyndir af þekkt-
um mönnum.
í ofannefndri tölu eru ekki innifaldir nokkrir minni hópar af mynd-
um tilheyrandi sérsöfnum, eins og Minjasafni Jóns Sigurðssonar,
Tryggva Gunnarssonar, Þorvalds Thoroddsens og frú önnu Stephen-
sen. Aftur á móti eru þar skráðar og meðtaldar allmargar ljósmynda-
plötur, sem Þjms. hafa áskotnazt, t. d. talsvert af ómerktum plötum
teknum af Pétri Brynjólfssyni, Jóni Dahlmann o. fl. ljósmyndurum,
sem skráðar hafa verið í safnið jafnóðum og hægt hefur verið að
ganga úr skugga um, af hverjum þær eru. En langflestar ljósmynda-
plötur, sem skráðar eru í þessu safni, eru frá Sigfúsi Eymundsen og
Nicoline Weyvadt.
Sigfús Eymundsen (1837 — 1911) mun fyrstur manna hafa sto|n-
að og rekið ljósmyndastofu hér í Reykjavík, eða frá 1866 og til dauða-
dags.1) Hvenær plötusafn hans komst í eigu Þjms., verður nú ekki
séð, en líklega hefur það ekki verið löngu eftir dauða hans. Sá galli
!) Ljósmyndagerð hér á landi mun hafa verið lítt eða ekki þekkt þar til um
1860. Talið er, að sira Helgi Sigurðsson á Melum í Melasveit og Tryggvi Gunn-
arsson, síðar bankastjóri, hafi verið einna fyrstir til að taka ljósmyndir hér.