Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Page 41
EYÐIBÝLI 1 HELGAFELLSSVEIT
45
1. Hella í Kársstaðadal (nú nefndur Kársstaðabotn).
í Eyrbygg'ja sögu er bærinn á Hellu nefndur í sambandi við tarf-
inn Glæsi og Glæsiskeldu. Býli þetta hefur vafalaust byggzt af ein-
um skipverja Geirröðar á Eyri. Það stendur skammt austur frá Ör-
lygsstaðaá, gegnt Örlygsstöðum. í túninu er hellir, sem bærinn hefur
dregið nafn af, sem nú er nefndur Örlygsstaðahellir. Sumt bendir til
þess, að byggð hafi haldizt þar alllengi, þó saga þess sé gleymd.
Óglöggt sér þar fyrir bæjarrústum, sem stafar af því, að upp úr
þeim hefur síðar verið byggður stekkur eða fjárrétt frá Örlygsstöð-
um. Túnið hefur verið allstórt, miðað við þá tíma. Það hefur verið
girt mjög öflugum torfgarði, sem enn sjást glögg merki til. Skammt
sunnan við túnið, í fögrum hvammi, er örnefnið Akranes, og talar
það sínu máli. Hella hefur verið lítið býli, en þó unaðslegt að ýmsu
leyti. Bærinn stóð á fögrum stað fyrir miðjum Kársstaðadal. Um-
hverfis dalinn er stórbrotinn fjallahringur, sem myndast af Narf-
eyrarfjalli og Kársstaðahálsi að austan, Ljósufjöllum að sunnan og
Úlfarsfelli og Úlfarsfellshálsi að vestan. Engi slétt og frjósamt ligg-
ur norður frá túninu allt til sjávar, þar sem botn Álftafjarðar skerst
frá norðri inn á milli hárra og hrikalegra fjalla. Upp frá enginu
hefur þá tekið við skóglendi upp í miðjar hlíðar. Þá tók við kostaríkt
afréttarland suður í Ljósufjöllin. Silungsveiði í ám og síkjum hefur
verið árviss á fyrstu öldum byggðar. Svo hefur og hér verið til
skamms tíma. Hér syngja svanir árið um kring, þegar fjörðurinn
er íslaus, og á sumrum má heyra unaðslegan samkór svana og sumar-
fugla. Mun ekki viðhorf við fyrstu sýn og eins konar skyldleiki Kárs-
staðadals og hinna þröngu fjarða og dala Noregs hafa heillað huga
landnemanna til þess að hefja svo mikið þéttbýli hér, sem raun
varð á?
I jarðabók Árna Magnússonar um 1702 er Hellu getið sem eyði-
býlis, er með engu móti kunni aftur að byggjast vegna landþrengsla.
2. Bólstaður í Álftafirði.
Arnkell goði hefur vafalaust byggt fyrstur bæ á Bólstað. Er lík-
legt, að hann hafi fengið landið hjá föður sínum, Þórólfi bægifót,
eftir að hann tók löndin umhverfis Úlfarsfell af Úlfari kappa um
eða eftir miðja 10. öld. Ekki er vitað til, að byggð hafi haldizt á Ból-
stað eftir fráfall Arnkels goða. Þess sjást því lítil merki við fyrstu