Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Síða 42
46
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
sýn, að þar hafi mikill höfðingi alið aldur sinn. Þó höfðu jafnan hald-
izt munnmæli um, hvar bær Arnkels hefði staðið. Með ítarlegri rann-
sókn og uppgrefti hefur nú fengizt staðfesting á sannleiksgildi þeirra
munnmæla.1)
Bær Arnkels goða hefur staðið á vestari bakka Úlfarsfellsár, eins
og hún rennur nú. En í tíð Arnkels mun áin hafa runnið lítinn spöl
fyrir vestan bæinn. Þar sér enn fyrir fornum farvegi til sjávar. Arn-
kell hefur því getað haft mjög stórt og fagurt tún, sem nú er vall-
lendisgrundir, austur og norður frá bænum til sjávar. Áin hefur
síðar brotizt gegnum túnið á ýmsum stöðum og gert ótrúlega mikið
umrót. Engin merki sjást til girðinga um túnið, en vel má slíkt vera
löngu afmáð vegna eyðandi náttúruafla. Bær Arnkels goða hefur
ekki verið stór, en við nákvæma leit þjóðminjavarðar Matthíasar
Þórðarsonar, sem stjórnaði uppgrefti á Bólstað, fann hann skála
skammt suður af bænum, án þess að nokkur ytri verksummerki væru
sýnileg. Skálinn var grafinn upp með vísindalegri nákvæmni. Kom
þá í ljós, að hér hafði staðið einn af stærstu og veglegustu skálum,
sem fundizt hafa á landi hér.
Margir hafa undrazt það, hversu lítið land Arnkell hafði á Ból-
stað. Af sögu hans má merkja, að hann hafi búið við landkreppu.
Vafalaust hefur hann notið að einhverju leyti Úlfarsfellslands. Geir-
ríður amma hans átti land á Narfeyrarhlíð gegnt Bólstað. Líklegt
er, að hún hafi haft lítið um sig, því hún kom þangað öldruð og hefur
máske verið því nær einsetukona og lifað mest á eignum sínum frá
Noregi. Arnkell gat því vel notið landskosta frá henni. Á síðustu ár-
um sínum náði hann undir sig Örlygsstöðum. Þá má minnast þess, að
Arnkell goði var verkmaður mikill og árrisull og hefur haldið hjón-
um sínum til starfa. Skálinn mikli á Bólstað vitnar um stórmennsku
hans og höfðingslund.
3. Hvammur í Þórsárdál.
Bærinn Hvammur stóð í fögrum hvammi undir vesturhlíð Úlfars-
fells. Þaðan er fögur útsýn yfir dalinn og hluta af Helgafellssveit.
Lengra til norðurs blasir við Breiðafjörður með Barðastrandarfjöll-
in í baksýn. Suður og upp frá bænum var hávaxinn skógur. Svæði
það heitir nú Brenna og er skóglaust með öllu. Lítil merki sjást hér
!) Matthías Þórðarson, Bólstaður við Álftafjörð, Árbók 1932, bls. 1 o. áfr.