Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Page 55
EYÐIBÝLI 1 HELGAFELLSSVEIT
59
mun jafnan hafa verið á hvorri jörð fram um eða yfir 1800. Litlu-
Seljar voru taldir helmingur á við Stóru-Selja. Þar hefur getað verið
gott tún, því túnefni er þar gott og liggur móti sól og suðri, í skjóli
fyrir norðanátt. Nú hafa jarðir þessar fyrir löngu verið sameinaðar
í eina jörð. Rústir bæjar- og útihúsa eru mjög miklar og bera þess
vitni, að þar hafi byggð haldizt lengi. í jarðabók Á. M. er Litlu-Selja
getið á þessa leið: Jarðardýrleiki 12 hundr. Ábúandi Jón Jónsson.
Landskuld er þá 60 álnir. Hafði áður verið 80 álnir, en var færð nið-
ur vegna áruna. Leigukúgildi 4. Kvikfénaður er þá talinn 6 naut-
gripir og 3 hross. Heimilismenn 3. Loks segir þar, að heimræði megi
vera og þó erfitt. Er það vissulega ekki ofsagt.
31. Selvellir.
Um miðja 18. öld eða síðar var jörðinni Horni skipt í tvær sjálf-
stæðar jarðir. Nýbýlið var byggt í sellandi Horns og nefnt Selvellir.
Allhár háls skilur á milli jarðanna. Bærinn Selvellir stóð nokkurn
spöl austur frá hálsinum, fast við rætur móbergsf jalls, sem Horn
heitir. Túnið liggur niður frá bænum á löngu uppgrónum vikurbung-
um og var orðið furðu stórt, áður jörðin féll í eyði, enda bjuggu þar
um skeið góðir bændur hver fram af öðrum. Niður frá túninu tekur
við frjósamt og slétt engi, sem nær niður að veiðivatni, er Selvalla-
vatn heitir. Fylgir hálft vatnið Selvöllum. Silungsveiði allgóð er í
vatninu, sem var talin jörðinni til hlunninda. Á vetrum flæðir vatnið
yfir stórt svæði af enginu, og gefur það af sér árlega um tvö kýrfóður
af ágætri flæðiengisstör. Engi þetta er véltækt til sláttar. Auk þessa
má hafa allmikinn heyskap skammt út frá túninu og lengra frá ágæt-
ar fjallslægjur. Túnið er auðvelt að stækka stórlega. Er það sérlega
auðunnið, greiðfært og grjótlaust land. Landkostir eru hinir ágæt-
ustu og skjólasamt fyrir búfénað. Heima við bæinn er logn í sunnan-
átt og norðanáttar gætir þar lítið. Kostaríkt f jallland fylgir jörðinni.
Dugmiklir bændur, sem þar ráku bú fyrir nokkrum áratugum, létu
sauðfé sitt ganga þar til jóla, ef tíðarfar var sæmilegt. Neyzluvatn
ágætt er í læk, sem rennur meðfram bænum. Nokkuð er hér snjó-
þungt á vetrum. Þjóðvegur liggur í 1 km fjarlægð, og vegalengd til
næsta bæjar er örlítið meiri. Jörðin féll í eyði 1936. Síðustu búendur
voru hjónin Georg Jónasson og Guðfinna Bjarnadóttir.