Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Side 84
88
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
vitneskju um, hvað erlend söfn eiga af íslenzkum tréskurði, er von-
andi, að skrárnar gefi nægilegar upplýsingar. I þeim eiga að vera
ljósmyndir af merkilegustu mununum.
Eins og eftirfarandi skrá sýnir, kom allt safnið af íslenzkum tré-
skurði í Nordiska Museet á stuttum tíma. Að undanteknum 6 grip-
um, sem komu á árunum 1874, 1875 og 1877, kom það allt saman á
árunum milli 1882 og 1892. Gripirnir eru komnir frá nokkuð mörg-
um einstökum söfnurum. En hér skulum vér aðeins nema staðar lítið
eitt við einn þeirra, séra Helga Sigurðsson.1) Safn hans, 270 númer,
kom til safnsins 1888. Af þeim eru 42 númer trémunir með útskornu
skrautverki; er það stærsta sending af íslenzkum tréskurði, sem
safninu hefur borizt í einu. Mjög mikilvægt er, að skrá Helga Sig-
urðssonar með upplýsingum um hina einstöku gripi fylgdi með og
er geymd í safninu. Þar er ekki minnst um vert, að skráin gerir
grein fyrir, hvaðan hlutirnir séu komnir, að svo miklu leyti sem
unnt hefur verið. Skráin er rituð í þrjú mismunandi þykk hefti.
Yfirskrift minnsta heftisins er: Skrá yfir forngripi sr. Helga Sig-
urðssonar á Akranesi. 1887. Flest númerin hafa hér aðeins fengið
eina línu hvert. Heftið nær til nr. 250. Miðstóra heftið: Skrá yfir
forngripi síra Helga Sigurðssonar á Akranesi. (Niðurröðun eptir
Skránni til Uppsala.) 1887. Innihaldið er það sama og í minnsta
heftinu (en nokkru minna um hvern einstakan hlut), til og með
nr. 250. Síðan kemur: Eptirfylgjandi fornmunir fylgdu safninu, en
finnast eigi í skýrslu síra Helga sál. Því næst fylgja 20 númer
(1—20). Og að lokum eftirfarandi yfirlýsing:
Vi Undertegnede som have været tilstede ved Modtagelsen og Ned-
pakningen af en Deel oldnordiske Gjenstande iffilge ovenstaaende
Specification som skal forsendes til det „Nordiska Museum“ i Stock-
holm og adr. til „Dr. A. Hazelius“ bevidne herved at disse Sager ere
forsvarlige og omhyggelige nedpakkede i en stærk og ny Kasse, saa
at der fra Afladerens Side ikke kan gjfires mere for at beskytte
disse Sager.
Marbakki 12/10—88.
Jón Sveinsson. Einar Guðmundsson. Vilhjálmur B. Þorvaldsson.
J) Um ævi hans og störf og um ástæður fyrir því, að hann seldi Nordiska
Museet safn sitt, hefur dr. Matthías Þórðarson ritað fróðlega ritgerð í „ís-
lenzkir listamenn" I, bls. 46 — 66. (Rit Listvinafélags íslands I, Reykjavík 1920.)