Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Qupperneq 94
98
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
L: Finnes Fotograferadt i nat. storlek á 6 piátar: lGA.i.k.m. och
IGB.t.u.v. (tagna för drottngs. af England rákning 1909).
1. 388^3. Rúmfjöl úr furu. L. 127.5, br. 16.5, þ. 1.3.
2. Óskemmd. Ómáluð. 12.Z.Ö.
3. Útskurður á framhlið. Höfðaleturslínur meðfram báðum könt-
um. Milli þeirra er í miðju ferhyrndur flötur og á hann skornir að
ofan þrír latneskir skrifstafir, undir þeim og greint frá þeim með
grunnt skornum, láréttum bekk af „snúnum böndum“ er ártal. Sitt
hvorum megin við ferhyrninginn er upphleyptur bylgjuteinungur,
2-3 mm að hæð. Til vinstri gengur hann út frá neðra horni fjalar-
innar, til hægri frá því efra. Myndar hvor um sig fimm aðalvafn-
inga og enda báðar við miðferhyrninginn í tveimur stönglum, sem
vefjast upp. Báðir stönglarnir og lykkjumyndað blað tengjast sam-
an af þverbandi, svo að þar myndast pálmetta. Stönglarnir eru flatir
að ofan með innri útlínum og þverböndum við greinaskipti. Breiddin
er allt að 3 sm. Allar greinar vefjast upp í undninga. 1 hornunum að
ofan og neðan eru lítil lykkjumynduð blöð sem útfylling. — Laglegt
og lýtalaust verk, en virðist vanta hugmyndaflug.
4. Ártal: 1875.
5. Áletrun. Fangamarkið G. Þ. D. (innskorið) og höfðaleturs-
línurnar:
sentunuværdisængtilminsvæfmigmeddufuvængumþiv.
heilagiherraiesueilifsolinsemskærustskinskilmiiu
6. L: Rolf Arpi, Uppsölum, keypti; kom 8. 12. 1883.
8. Peasant Art, fig. 38.
1. UU161. Rúmfjöl úr furu. L. 132.5, br. 18.5, þ. um 1.
2. Sama sem óskemmd. Aflangur bútur hefur verið tekinn úr við
efri kant vinstra megin og nýr settur í staðinn, festur með trétöpp-
um á bakhliðinni. Liklega leifar af dökkri málningu. 12.Z.0.
3. Lágt upphleyptur útskurður á framhlið. Eftir miðri fjölinni
endilangri er hringakeðja; eiginlega eru hinir einstöku hringar fest-
ir saman með láréttu bandi, sem þrætt er gegnum þá. Hringarnir og
bandið hafa innri útlínur. Breidd er um 8 mm. Kringum hringana
og inni í þeim er útfyllingin blaðverk og rúðustrikaðar „kringlur“.
Blöðin eru samansett af frammjóum flipum með skoru eftir miðj-
unni. Fyrir utan hringakeðjuna er við annan endann maður og söðl-
aður hestur. Maðurinn stendur við hlið hestsins. Við hinn er ferfætt
dýr inni í síðasta hringnum og fugl fyrir utan. Kantarnir eru strik-
heflaðir og höfðaleturslínur meðfram báðum. Einnig á bakhliðinni