Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1972, Síða 112
112
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
þrír eru að vísu horfnir undan stólnum, en fylgdu honum á Þjóðminja-
safnið árið 1917. Stóllinn er 111,5 cm á hæð. Hliðar hans eru 40—45
cm á breidd. Uppi yfir annarri hliðinni (frá vinstri) er lespúlt. Á
fjórum hliðum eru myndir á miðspjöldum, en hin fimmta hefur
verið sett við suðurvegginn og er myndlaus en mahógní-máluð. Nöfn
þeirra, sem myndirnar eiga að tákna, eru sett í boga fyrir ofan þær:
MARTINNUS LUTHERUS — MOSSIS — SALVATOR MUNDI —
S. IOHANNES: Fyrir neðan myndina af Frelsaranum stendur:
Anno — 1682 —. Fyrir ofan og neðan myndirnar eru leturbekkir,
sem á eru letraðar ritningargreinar á dönsku. Listar eru beggja
vegna við leturbekkina, ofan við og neðan við.
Nánari athugun á leturbekkjunum sýnir mjög fornlega stafsetn-
ingu á ritningargreinunum. Á efri bekknum stendur: »Herre Alle
Dine Gie?’ninger Schulle tache dig. Och Dine Hellige Skulle Loffue
dig.“ Þetta er kunnugt sálmvers úr Saltaranum, sbr. Sálm. 145, 10.
Orðin eru nákvæmlega þau sömu og í biblíu Kristjáns fjórða 1647,
en stafsetning er öll önnur. Á neðri bekk stendur: „Jeg vil Loffue
Herren saalenge ieg leffuer, ieg wil siunge min Gud Lauff medens
ieg . . . .“ Þetta eru einnig alkunnug vers, Sálm. 104, 83, en ekki
hefi ég getað fundið alveg samhljóða danskan biblíutexta frá þessum
tíma. En augljóst er á frágangi stólsins nú, að lok ritningargrein-
arinnar vantar. Gefur það fastlega til kynna, að upphaflega hafi
verið á stólnum enn ein myndhlið, sem nú er týnd. Sú hlið hefur
hugsanlega getað horfið, þegar stóllinn var fluttur yfir altarið. Þá
hefur þurft að rífa eina hlið stólsins burt til að koma fyrir stiga upp
í stólinn. Jafnframt hefur þurft að gæta þess, að mynd frelsarans
blasti við söfnuðinum.
M?jndir stólsins. Eftirtektarverðasta einkenni þessa prédikunar-
stóls eru myndir hans og niðurröðun þeirra. Þó er Lúthers-myndin
ef til vill merkilegasta mynd stólsins, því að hún virðist einstæð á
Norðurlöndum meðal varðveittra mynda frá þessum tíma. Vil ég nú
leitast við að rekja hinar einstöku myndir til fyrirmynda sinna eftir
því, sem ég hefi komizt næst.
Martinnus Lutherus. (2. mynd). Prédikunarstóll þessi er smíð-
aður og málaður á síðari hluta 17. aldar, þegar hinn lútherski rétt-
trúnaður er hvað fastastur í sessi í Danmörku. Þó er það merkilegt,
sem athugun leiðir í ljós, að þessi Lúthersmynd er sú eina sem varð-
veitzt hefur á prédikunarstól í öllu dansk-norska ríkinu á 17. öld og
jafnvel þeirri átjándu. Nokkrar myndir af Lúther og vini hans
Melanchton eru varðveittar frá seinni hluta 16. aldar á þessu svæðn