Heimskringla - 25.09.1946, Side 5

Heimskringla - 25.09.1946, Side 5
WINNIPEG, 25. SEPT. 1946 HEIMSKRINGLA 5. SIÐA BEZTU OSKIR í tilefni af sextíu ára WOOD- WOOL STOPP I HUSUM GERIR HEIMILIÐ ÞÆGILEGRA Sparar eldivið Sparar vinnu. Deyfir hljóð. Selst því betur sem meira er reynt. Eykur hita á vetrum. Gerir hús svalari á sumrum 1325-1349 SPRUCE STREET WW ’ý! m Mf WW W Síðan á frumherjatíð þessa fylkis—eða í full sextíu ár, hefir vikublaðinu “Heimskringlu” verið haldið úti. Er nú með elztu blöðum hér um slóðir. Færum vér blaðinu heillaóskir á þessiun merku tímamótum þess, og þakkir fyrir mikinn og lofsverðan skerf og stuðning, er það hefir lagt til allra menningarmála þessa bygðarlags og um- hverfis, alt frá stofnun þess, og fram á þennan dag. Þótt City Hydro sé ekki eins gamalt að árum. þá hefir það einnig um langa tíð lagt sinn hluta til framfara í þessari borg og umhverfi hennar. Síðan árið 1911, þegar hin ódýra raforka City Hydro var fyrst leidd til borgarinnar, hafa íbúar hennar notið þæginda og framleiðslu hennar, og svo hagkvæmra viðskifta, að tæplega er slíkt að finna á öllu meginlandi Norður-Ameríku. Rafmagns-forði Winnipeg er nægur, ábyggi- legur, og merkilega ódýr; meðaltals kostnaður minna en eitt cent fyrir “Kilowatt Hour”. Þetta lága verð hefir átt mikinn þátt í því að auka vöxt og viðgang Winnipeg sem iðnaðar-mið- stöðvar. Hið lága verð hefir aukið og útbreitt not raf- magnsins á heimilunum, og þannig bætt lifnaðar- hættina. City Hydro er sannarlega félagslegt fram- faraspor almennings, þar sem íbúar Winnipeg eiga það og stjórná því. 'Og svo er það, að nálega $2,500,000 hafa verið veittar af ágóða Hydro á síðastliðnum nokkrum árum til hjálpar ýmsum fyrirtækjum borgarinnar, og þannig létt byrði þeirra, er skattana þurfa að bera. Þegar þér hafið þörf fyrir rafmagns-notkun, þá munið eftir að City Hydro er yður til reiðu — notið það! Slave Falls vióaukinn lítur þannig út Kröfur til rafmagnsorku fara sífelt vax- andi, og til að tryggja það, að City Hydro hafi nægilegan forða fyrir alla sína skifta- vini, hefir framlenging til Slave Falls orku- stöðvarnnar verið búin til. Verkið byrjaði síðastl. sumar, og síðari helming orkustöðva-byggingarinnar er nú nálega lokið. Tvær 12.000 hestafla einingar verða settar þar upp á þessu ári, og öðrum tveimur verður bætt við næsta ár. Þegar lokið hefir verið við Slave Falls aflstöðina, mun hún hafa 96,000 hestafla framleiðslu- magn . . , ábyggilegan og tryggan forða af ódýru ráfmagni fyrir heimili og iðnað Winnipeg-borgar. CITY H YD Skrifstofa 55 Princess Street Sýningarstofa: Portage og Kennedy Sementsteypvi undirstöðurnar lagðar Lagning sementssteypu gólfs í byggingunni 'mwrni mmmi\ mmwmwj iimmm

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.