Óðinn - 01.07.1920, Síða 1

Óðinn - 01.07.1920, Síða 1
ÓÐINN 7. — 1«. BL.AD | .TtJLií — DKS. 10Í20 l XVI. Á){. Hafn, Landsbókasafnið, sem er ein merkasla menta- stofnun landsins, hefur nýlega haldið aldarafmæli sitt. Og það er einmitt i sambandi við þessa slofnun, að Rafns er helsl og hlýjast minst hjer á íslandi ennþá, þó æfistarf hans hafi að öðru leyti og aðal- lega verið fyrir utan hana. En það var hann, sem varð til þess að hrinda stofnun Lands- bókasafnsins i fram- kvæmd og hann fjekk menn til að hefjast þar handa og starfaði altaf síðan af óeigin- girni og ötulleik að eflingu þess, útvegaði þvi bækur og fje og vann fyrir það á marg- víslegan hátt annan. En afskifti hans af safninu er ekki hægt að rekja hjer, en verð- ur að vísa til minn- ingarrits Landsbóka- safnsins, eftir yfirbóka- vörð Jón Jacobson. En starfshugur og dugnaður Rafns Ijet víðar til sín taka í þessu efni en hjer. Hann átli t. d. frumkvæði að því, að stofnuð væru, skömmu á ettir Landsbóka- safninu, bókasöfn i þórshöfn á Færeyjum og á Grænlandi. Yfirleitt má kanske segja, að aðalstarf og gildi Rafns hafi legið í þeim síkvika og ódrep- andi dugnaði, sem hann sýndi í því að hrinda af stað ýmsum fyrirtækjum, sem til framfara horfðu og bóta í þeim greinum, sem hann hafði áhuga á, og í lægni hans og ákafa á því, að vekja áhuga annara á þessu, svo að þeir legðu fram til þess fje og krafta. því sjálfstæð vísindamenska sjálfs hans hefur nú að ýmsu leyti glatað gildi sínu og starf hans t. d. að fornritaútgáfum hefur ekki þótt nákvæmt nje vandað að öllu leyti. Sama er um rúnaráðn- ingar hans, enda var það ekki fyr en all löngu seinna, að þau vísindi komust svo á rekspöl og svo margar og fullkomnar útgáfur og söfn voru til af rúnaristunum, að unt væri að vinna þar með fullri vísindalegri ná- kvæmni. En samt geymist nafn Rafns í sögu nor- rænna fræða — fyrst og fremst fyrir það, að hann stofnaði nor- ræna fornrita- eða fornleyfafjelagið, sem nú er eitt stærsta og öflugasta fjelagið, sem fæst við þessi fræði og hefur gefið út hvert afbragsverkið á fætur öðru og á nú höfuð- stól, sem nemur um 185 þúsund krónum. Það hefur t. d. gefið út Formannasögurnar, sem hjer voru mikið lesnar og keyptar og í rauninni meira ætlaðar sem alþýðuútgáfa, en vísindaleg út- gáfa. Um svipað leyti komu einnig út danskar þýðingar á sögunum og latneskar, eftir Sveinbjörn

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.