Óðinn - 01.07.1920, Síða 9

Óðinn - 01.07.1920, Síða 9
ÓÐINN 57 Jeg fann, aö blindan var að koma yfir mig. Annaðhvort varð því, að hrökkva eða stökkva! (Sterkara). Jeg vissi, að það var jeg sem álti að bjarga henni — það var mitt hlutverk. Það var það stóra, sem jeg er fæddur til. Jeg fann að stundin var komin — stundin þegar það ómögulega yrði framkvæmt — mundu hversu vei mjer gekk í fyrstu — og jeg hikaði ekki! Sigfla: Pabbi — leystu frá augunum! Pað er enginn, sem vill gera það — og jeg get það ekki! Ragnar: Nei, nei — jeg særi þig við alt sem þjer er heilagt — gerðu það ekki núna! Nei — pabbi jeg verð brjálaður ef þú gerir það! Pað er ennþá ekki liðinn nógu iangur tími frá uppskurðinum. Gefðu mjer frelsi þangað til á morgun! Björn: Nei! Ragnar: Pangað til seinl í kvöld! Bindið verður að takast frá í myrkri. Augun þola ekki birtuna í fyrstunni. Petta er stærsta bónin, sem jeg hefi beðið þig! Björn (eftir skamma stund): Jeg gef þjer frelsi — þangað til i kvöld! Heppnist þjer fítldirfska þín — reyni jeg að fyrirgefa þjer! En hafirðu rænt hana sjóninni, þá . . . (þagnar — fer með Siggu — í dyrunum). í kvöld! Ragnar (rólegur): Pakka þjer fyrir — það er mjer nóg! Ólöf (kemur): Ragnar! Ragnar: Pví komstu með Siggu? Olöf: Jeg gat ekki aftrað því. Hún heyrði einhvern segja, að pabbi hennar væri kominn. Pú heldur ef til vill, að það hafi verið gaman að fást við liana allan þennan tíma? Ragnar: Komdu hjerna, Ólöf! Ólöf (nálgast liann). Ragnar (tekur um hendur hennar): Heldurðu að það lánist? (Ákaft). Heldurðu að hún fái sjónina aftur? Ólöf: Pað get jeg ekki sagt þjer! Ragnar: Jú, segðu það! Segðu að hún fái sjónina. Segðu það — og jeg trúi því! Ólöf: Pví skyldi jeg segja það, sem jeg ekki veit! Ragnar (þrýstir henni að barmi sjer): Jeg skipa þjer að trúa þvi! Ólöf: Jeg skal vona það og trúa því með þjer! Ragnar: Pú trúir því ekki! (Vonlaust). Jeg trúi því heldur ekki! (Setst — byrgir andlitið í höndunum). Jeg hef rænt hana sjóninni! Ó, guð hjálpi mjer! Ólöf: Hún hefur lofað, að taka það með stillingu hvernig sem fer. Ragnar: Pað loforð getur hún ekki efnt — og þótt hún þegði — samviskubitið mundi aldrei yílrgefa mig. (Mjúkt). Ólöf! í nótt kom hún til mín! Augun vantaði. En hún horfði þegjandi á mig með tómum augnatóft- unum. Pá varð það, að jeg tapaði trúnni! Pað rann alt í einu upp fyrir mjer, hvað jeg hafði gert! Mjer fanst jeg hafa myrt hana! (Tekur Ólöfu i fang sjer). Ó, hjálp- aðu mjer! Nú er jeg einn — allir hata mig! Lofaðu mjer að fela mig við barm þinn. Jeg er lítill drengur, sem þú átt að varðveita! (Pögn). Pví komstu ekki fyr til mín? Oiöf: Pú baðst mig að lofa þjer að vera einum. Auk þess fullvissaðir þú mig um að þú elskaðir aðra! Ragnar: Setjum nú svo að jeg hafi sagt þjer ósatt. Hvernig gat jeg beðið þig að koma — jeg sem sveik þig! Ólöf: Nú er jeg kominn — og jeg fer aldrei aftur ef nokkur neisti þinnar fyrri ástar lifir i hjarta þínu! Ragnar: Jeg sver við nótt augna minna, að þig eina hefi jeg elskað. Jeg var hjegómagjarnt barn innanum alla mína alvöru. Peir öfunduðu mig af Hildi. Og jeg tók á móti hendi hennar til þess að storka þeim, Pegar jeg var þreyttur, fanst mjer jeg finna meiri gleði hjá henni en þjer. En það var gleði eins og sú, sem vínið veitir. Nú get jeg sjeð, hve mikils virði þetta altsaman var. Hún hefur gleymt mjer. Fjelagar mínir hafa gleymt mjer — allir, nema þú! Ólöf: Ragnar! (Pögn). Ragnar: Best væri, að þú líka vildir glej'tna mjer! Ólöf: Jeg svíf milli vonar og ótta: Áðan hjelt jeg að þú elskaðir mig. Segðu mjer sannleikann. Pað er ekki af meðaumkvun til þín að jeg kem! Ragnar: Jeg hefi mist tnáttinn til þess að Iifa — mátt- inn til þess að elska. Jeg er ekki annað en rödd, sem hrópar í myrkrinu. (Pögn). Ólöf (beygir sig vfir hann): Einu sinni sagðirðu að jeg gæti brosað þunglyndiskýin burt af sálu þinni. Get jeg það ekki ennþá, ástin mín — get jeg það ekki ennþá? Ragnar: Pú kernur vist of seint, vina mín! Pegar and- vökunæturnar koma — ein eftir aðra — verður manni svo undarlega kalt. Mjer er orðið of kalt. í nótt var sjálfur dauðinn andvaka! Ólöf: Konii jeg of seint, þá er sökin þín! (Slerkara). En jeg kent ekki of seint. Pótt þú værir dauður og kaldur, skyldi jeg kyssa lífið í þig. (Kyssir hann). Ragnar: Varir þínar eru hreinni en munnur rauðra rósa, þegar þær í fyrsta sinni brosa við sólinni. Gefðu mjer meira að drekka, yndislega! Ólöf: Drekka! (Iíyssir hann aftur). Pú ert svo þreyttur. Villu sofa? Ragnar: Nei — jeg vil vaka. Jeg vil vaka með þjer og sjá sólina ganga undir i siðasta sinn. í kvöld. Hahaha! Ólöf: Petta er kaldur hlátur. Ragnar: Pað var dauðinn, sern hló. Ólöf: Pú ættir að hvíla þig og sofa, Ragnar! — Láta þig dreyma um alt það fagra, sem lífið geymir handa okkur! Ragnar: Mig dreymir — dreymir að þú lokir augum minum i siðasta sinni — augunum sem ekki sáu annað en myrkrið. (Pað er gengið framhjá glugganum — það heyrist hringla í skautum). Heyrðu hringlið í skautun- um. (Stendur upp). Pað Iætur í eyrum mínum eins og söngur. Ó, hvað mig langar þarna úti gteðina — útí daginn og birtuna. Pað verða víst margir á skautum í kvöld. Jeg fer líka á skauta! (Æstur). Jú, jeg skal með þeim! Ólöf: Nei vinur minn! Við verðum kyr heima. Ragnar (órór): Pegar lúðrarnir gjalla, er jeg hræddur um að jeg dragist í dansinn . . . og svo vil jeg líka vita, hvað þeir hugsa ura mig! Jeg vil vila hvernig þeir dæma mig. (Setst). Ólöf (gengur skyndilega til hljóðfærisins): En hvað það er komið mikið ryk á hljóðfærið. Ragnar: Hljóðfærið! Pví hafði jeg gleymt! Pú hefðir ekki átt að minna mig á það! Ólöf (setst — spilar).

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.