Óðinn - 01.07.1920, Page 18

Óðinn - 01.07.1920, Page 18
r.fi ÓÐINN prenli nema lítið af árangrinum af þeim. Þýðingar eru nokkrar til eftir hann á ensku, t. d. þýðing á Kormáks sögu, er hann gerði í fjelagi við W. G. Collingwood. Hœrmœndene paa Helgeland eftir Ibsen þýddi hann, en þegar bókin var nýkomin út kom það í Ijós að William Archer var búinn að fá þýðingarrjettinn, og mátti því eigi selja bókina. Var það illa farið að salan var eigi leyfð, því að sögn þeirra, er borið hafa saman þýðing- arnar, tekur þýðing Jóns hinni fram. Norsku lög hin fornu hefur hann líka nýlega þýtt á ensku, en eigi er mjer kunnugt um að þýðingin sje ennþá komin á prent. Sfðasta og jafnframt stærsta rit, sem birtst hefur frá hendi Jóns, er Dana og Svía saga með ágripi af sögu íslands og Finnlands. Hún kom út i Lundúnum liaustið 1916 og var hennar þá gelið í ýmsum íslenskum blöðum. Var henni svo vel tekið að fyrsta prentun seldist upp svo að segja á svipstundu. Síðan hefur hún einnig komið út í Ameríku og að sögn hlotið þar svipaðar vinsældir. Á íslensku hefur dr. Jón lítið ritað og þó nokkuð (í Eimreiðina, Tímarit Bókmentafjelagsins o. v.). t*að væri að líkindum að honum væri nú orðið stirt um að rita það mál eftir að hafa dvalið erlendis hátt á fjórða tug ára. En því er íjarri. Hann skrifar ennþá jafn hreina, lipra og snjalla íslensku eins og þeir sem best gera það hjer heima, og er það ein sönnun þess hve fádæma ljett honum er um að fara með mál. Ensku hefur hann þýtt svo haglega á íslensku að þar finst mjer varla aðrir en Jón Ölafsson hafa verið jafn- snjallir. Má t. d. benda á hve fimlega hann þýðir ram-ensk nöfn á ritum Williams Morris í Eimreið- inni 1897. Ensku skrifar hann svo vel að jafnvel lærðir menn á Englandi hafa lalið mál bans fyrir- mynd, og er þá mikið sagt, því Bretar leggja meiri rækt við sína tungu en við gerum við íslenskuna. Það hygg jeg sanni nær að svipað megi einnig segja um sum önnur mál, er hann ritar. Og hvað sein hann skrifar, þólt eigi sje það nema sendibrjef, ber það alt á sjer sömu ein- kennin: stíllinn fjörlegur og snjallur, hugsunin ljós og ótvíræð, og það sem við miðlungsmenn- irnir getum ekki sagt í færri orðum en fimtán, það er honum Ijelt um að segja í tíu. í’að var óneitanlega miður vel farið að Jón Stefánsson skyldi lenda á blaðamannahillunni í staðinn fyrir að komast strax í háskólakennara- embælli og geta gefið sig eingöngu við lærdóms- iðkunum. Fyrir það sjer litla ávexti af miklu af þvf sem hann hefur gert. Auk þess er það margt, sem glepur fyrir blaðamanninum í stórborgum heimsins, einkanlega þeim mönnum sem eru, eins og dr. Jón, ræðnir og fjelagslyndir að eðlisfari. Það er þvi ekki að undra þótt honum hafi stund- um orðið skrafdrýgra í klúbbnum og hann setið þar lengur en gott var fyrir framkvæmdirnar. Á Englandi hefur hann líka lengst af ekki átt neitt eiginlegt heimili, heldur búið hingað og þangað í boarding-houses, svo það er fátt, sem laðaði hann heim til vinnu. Auk þess mun það mála sannast að hann sje meiri gáfumaður en eljumaður. En afkastamaður er hann með afbrigðum þegar hann situr við vinnu. Síðan 1864 að Guðbrandur Vigfússon fór til Englands hata ávalt verið þar íslenskir fræðimenn og er nú Jón Stefánsson einn eftir af þeim. Hann hefur eins og fyrirrennarar hans áunnið sjer vin- áttu margra hinna ágætustu og tignustu manna landsins.1) Og fáir íslendingar munu hafa komið svo til Lundúna síðan Jón fluttist þangað að eigi heimsæktu þeir hann, og allir ætla jeg að þeir beri honum einn veg söguna um gestrisni hans. Virtist mjer stundum sem hann hefði mátt stilla þar betur í hóf um útgjöld en hann gerði. En það er víst líka sannast að honum sje um annað sýnna en fjegeymslu fyrir sjálfan sig. Dr. Jón kvongaðist haustð 1918. Kona hans er frakknesk, og það er einróma vitnisburður allra þeirra, sem til hennar þekkja, að hún hafi flesla þá kosli er konu megi prýða. Síðan i fyrra haust hafa þau hjónin dvalið suður í Afríku, en mælt er að þeirra sje von aftur til Lundúna núna með haustinu. Snœbjörn Jónsson. Sl Um »Sprelti((. (Ljóöabók Jak. Thorarensens). Heiðar, sljettur, hraun og dý hlaupum íjetti eigi. Fór jeg spretti einum i alla spretta vegi. Ekkert ljett jeg í því finn, óðs er þjettur kraftur. Gott er þetta, góði minn, gefðu Sprelti aftur. — H. A. 1) Suinarið 1917 var honum lialdid heiðurssamsæli i Lundúnum i viðurkenningnrskyni fyrir starf lians í þágu enskra bókmenta. Stýrði James Bryce lávarður samsœlinu og talaði fyrir minni heiöurs- gestsins. — S. J.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.