Óðinn - 01.07.1920, Page 19
ÓÐINN
67
Kvæði.
Eftir Þorstein P. Porsteinsson.
Framtíðarlandið.
Vor ónumda framtíð — vor óplægðu lönd
er æskujörð barnanna vorra.
Þar sjáum vjer hilla’ undir sólríka strönd
í svörtustu byljum á þorra.
Þar dvelur sú önd
við árdags rönd,
sem ei vill í nóttinni morra.
Hve gott er að eiga þar guðsríki sjer
i Glaðsheimi eilífðar nýjum,
þá umheimur stendur á öndinni hjer
frá ógnum úr nútíðarskýjum,
sem byrgja svo oft
hið bjarta loft
og bjarmann frá vordegi hlýjum.
Hver von vor og ljósþrá — hver lifandi trú
er leit inn á framtíðarvegi
að vorsveit með fegurri bygðir og bú,
en birtast á nútíðardegi,
hver ódrepin sál
á þau óskamál
þótt alein í böndum þreyi.
Þorsteinn f3. Þorsteinsson skáld.
En framtíðarbyggingin fer eftir því
hvað fortíð og samtíðin geymir.
En einkum hvað byrðinni borið er í
og bjargast sem Áslaugu Heimir.
Hvort hörpunnar ljóð
er lifandi hljóð
og ljósþolið flest, sem oss dreymir.
í helgispám norrænna sagna þú sjer
að sigurinn mannsandinn vinnur
mót úlfanna, jötnanna’ og Hel-sinna her,
sem harm-fjötur þjóðunum spinnur.
Á sælli grund
i gæfu lund
hann gulltöflur eilifðar finnur.
Til trausts lifa Víðarr og Váli sem fyr,
þótt Valfaðir augum sje falinn.
Þá stíga þeir Móði og Magni úr hyr
með Mjölni, er Þór gistir valinn.
Höf. þessara kvæöa er eitt af kunnustu Ijóöskáldutn
Vestur-íslendinga. Hann kom í vor, sem leið, heim
hingað frá Winnipeg, eftir 19 ára dvöl vestan hafs, og
hefur í sumar veriö á Norðurlandi. Hann er ættaður
úr Svarfaðardal, en kona hans, sem með honum kom
lieirn, úr Skagafirði. Má vera, að þau setjist að hjer
heima, en ekki mun það þó fullráðið enn. Mörg ágætis-
kvæði eru eftir P. P. P. til og frá i blöðum og tímaritum
Vestur-íslendinga. »Ljóðaþættir« heitir kyáðabók, sem
út kom eftir hann í Winnipeg 1918, og áður langt um
líður mun vera von á nýrri Ijóðabók frá honum. Hann
er og mesti hagleiksmaður í dráttlist og fást nú myndir
eftir hann víða í bókaverslunum hjer á landi.
Með heiða brá
ris Baldur þá
frá bana í framtíðarsalinn.
Þá fólkstjórnin lýstur burt lýðsfjötra þá,
sem lama þó kóngsböndin slitni.