Óðinn - 01.07.1920, Síða 20

Óðinn - 01.07.1920, Síða 20
68 ÓÐINN t*á Forseta Baldursson framtíðin á í fegurra dómsal en Glitni. Þá blasir við hún sú bróður-rún, sem bera á hjartanu vitni. í starfsríki frelsisins fögnuður grær og friður sem aldrei mun dej'ja. Þá heimurinn færist svo himninum nær að heyrist hvað guðirnir segja. Því lífið á til það ljós og yl sem langsærstu spárnar eygja. Hvert gæfuspor áfram er hjálpandi Hlín og Heimdallur vökuinanns líki. Pá fegra’ en á gullöld í framgengni skín ið fornhelga íslenzka ríki. Þvi gæti þess sá, sem þar griðland á, það guðsland sitt aldrei svíki. Bifröst. í buga mjer ritjast upp helgimál tvenn úr heiðni og kristni — því Bifröst enn er sama og friðbogans myndin mörgum. f*ær standa oss norrænum hlið við hlið sem helgustu vjeln — sem lífsins grið i musterum nútímans — horfnum hörgum. I boganum leika sjer litirnir þrir, sem ljóshvolfið mynda — sem í þeim býr, sem frið gaf til mannkyns — firði vörgum. Og goðin í öndverðu bygðu þá brú úr björtustu frumlitum: ást, von og trú, frá Hrímdölum jarðar að Himinbjörgum. Frá úrþrungnri nótt í austri rann, á árdegi þjóða, það ljós sem brann í regnbogans litum, því lífi sem fann að Ijósið var kraftur þess draums er það unni. t*að fann í því sjálft sig. Pað hóf upp hönd og himininn blessaði. Nam þau lönd, sem hugurinn leit frá Heljarströnd, í heilögum Glaðheim og Urðarbrunni. Og Ijómi þess enn — sú ljóssins trú, sem lífi veittist — skal einmitt nú oss íslenskum hjer vera Ásbrú sú, sem yfir oss flytur að hjartans grunni. Hún sje oss ei aðeins sú tengitaug, sem trúnaðinn bindur við hugmál þaug, sem reisir hjer íslenskar aflstoðir dottnar, — en lyftivjel sú, sem leiðir vor mál á ljóssins dómþing — að feðra sál, þars öndvegishelgi ættlands drottnar. — Ginn einasti heimsstaður: ísland sjálft. Ei útlendingstvístrið veilt og hálft. Nei, heimför með alt áður aflið þrotnar. — — Hjer síðasta verður það sögunnar kveld að sál vorri jötnarnir kasta á eld, er Surtur riður, en Bifröst brotnar. Ef finst þjer sú brú vera foraðshá, frá framandi landi til að sjá, þú hefur ei stöplana hlaðið þá, sem hvíla þarf vestlægi sporðurinn á og upp er gengið því einstigi frá, sem íslendingsskyldan hvern gæfumann leiðir. — Þinn skilningur rjettur — ei gullsins gnótt, fær grunn þinn steyptan með vökumannsþrótt, því mannvitið eitt hefur eldinn sótt og öldunum lýst yfir skammdegisnótt, er auður svaf. — Hann sefur enn rótt en svíkur það litla til starfs er hann greiðir. í austri er trygt ef hin unga þjóð í anda sjer geymir hin helgu ljóð. Á braut skaltu ríða í blálundinn fríða. Og alvera lands vors mun heyra vor hljóð, þá bjartað í einlægni brennur á glóð þess fórnarelds lýða, sem frelsi vill hlýða. Þín friðarins braut er hin fornhelga slóð, sem fegursta hugsjón þín ruddi og hlóð með dirfð lil að stríða, ei kend til að kviða. — Þín Bifröst, þín úlþrá í austurdagssjóð, er íslenzka sálin þín, líf þitt og blóð, sem æltland skal prýða til eilífra tíða. Á fyrsta sumardag. Ur sárum jarðar lífsins lindir streyma, sem langvarandi slökkva þorstans bál; svo orð frá hjartans undum svör þau geyma, sem æ spyrjandi friða mannsins sál. Hver upprisa er eilíf-ný og fögur, og alt sem breytir dauða og svefni í líf. Hver rofin þögn er vekur vori sögur. — Hvert vetrar sár er nýju lífi hlíf.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.