Óðinn - 01.07.1920, Side 32

Óðinn - 01.07.1920, Side 32
80 ÖÐINN við að búast, og hrikaleg stóryrði hans og djarfmæli pví síður. En andinn hreinn og djarfur á við alla tima jafnt. Og enginn sem með athygli hlýðir á vitnisburð hans getur annað en orðið snortinn af peim eldi sann- færingarinnar, sem Jogar í orðum hans, og látið hrifast af peirri heilögu vandlætlingu vegna drottins, eða peim logandi áhuga á frelsun sálnanna, sem hinn hreini, djarfi og karlmannlegi vitnisburður hans er svo prunginn af. Pað er pá líka trúa mín, að pótt ýmislegt kunni pað að vera í vitnisburði Vídalíns, sem ekki eigi við vora tíma, pá mundi pó bæði trúarlegur og siðferðilegur hagur pjóðar vorrar hafa verið með öðrum hætti en nú er hann, ef rödd Vídalíns hrein og djörf og karl- mannleg hefði fengið að lifa með pjóð vorri fram á pennan dag. III. í fijótu bragði gæti svo virst sem afturhvarfsprjedikun Jóns Vídalíns legði einhliða áherslu á syndina í lili mannanna. En svo er pó ekki. Pað er að vísu satt, að enginn hefur með pjóð vorri lýst bölvun syndarinnar og ógnum eilífrar ófarsældar jafnátakanlega og hann. En einnig par sem hann talar um náðina, nær hann háum og hreinum tónum. Hjarta hans er bersýnilega snortið af tilhugsuninni til óumræðilegrar dýrðar misk- unnandi náðar guðs og rjett óskiljanlegum fúsleika hans til að fyrirgefa hverju sanniðrandi barni sínu, er til hans flýr. Svo mikil sem syndin er, yfirgnæfir pó náðin púsundfalt. Af öllu dásamlegu veit Vídalín ekkert dásam- legra, ekkert óumræðilegra og í rauninni ekkert óskiljan- lega en pað, að hin eilífa guðdómsvera, sem er öllu ofar að mætti og veldi, skuli yfir höfuð vilja við oss líta, svo ómaklegir sem vjer erum líknar hans, og pað sem meira er, að hann skuli jafnvel viija fyrir pví hafa að leita oss uppi á sorgastöðum lífsins óbygða, ekki til pess að refsa oss vegna óhlýðni vorrar eða til pess að veita oss makleg málagjöld ódygða vorra og pverúðar, heldur til að gera oss hluttakandi náðar sinnar, til pess með krafti fyrirgefandi kærleika síns eins og að prýsta oss til að piggja náð sina pessa heims og eilífan fögnuð annars heims í ríki dýrðar hans! Og svo föðurleg er gæska hans, — svo brennandi er elska hans, — svo órann- sakanleg er fylling miskunnar hans, — svo óviðjafnan- legt áhugaefni er frelsun mannanna heilögu föðurhjarta hans, að pegar mennirnir skipast ekki við opinberun guðs ástarpels í handaverkum hans eða við kallandi rödd guðs í heilögu lögmáli hans eða við náðarfyrir- heitin af vörum spámanna hans, pá snýr hann pó ekki við peim bakinu, lieldur gerist sjálfur í fyllingu tímans maður í Jesú Kristi, til pess að vinna mennina til hlýðni við sig í kærleika og trausti, og bindur náðarhjálpræði sitt paðan i frá við persónu Jesú Krists svo sem frels- arans eina frá synd og dauða. Svo er pá og farið náðarprjedikun Jóns Vidalíns, að alt veitist par fyrir Jesúm Krist og vegna hans. í hon- um er guð orðinn maður! I honum öðlumst vjer hjálp- ræðið með fyrirgefning syndanna! í honum sameinumst vjer guði! Með pessum hætti verður Vídalín líka Krisls- prjedikari fyrir samtíð sína og eftirkomandi tíma og gefur pað vitnisburði hans ekki hvað minst gildi fyrir livaða tíma sem er. Ilann hefur rjettilega komið auga á pað, liversu alt líf Jesú er óslitin opinberun föður- legrar náðar guðs, og útbreiddir armar hans, negldir á krossins harða trje, eru honum dýrðlegt tákn pess hve óendanlega víðfeðmur guð er í miskunn sinni. »Komið til mín allir pjer sem erfiðið og eruð punga hlaðnir, jeg mun gefa yður hvíld«. Komið og kaupið án silfurs, guðs fyrirgefandi náð er öllum tii reiðu ókeypis hjá mjer! Par er krossins prjedikun í sínu hæslu tónum. Á Golgata á öll veröldin að geta skilið hið órannsakanlega og tileinkað sjer hið óskiljanlega, en jafnframt svo undur- samlega, að heilagur guð, sem heimtar og býður í lögmáli sínu, er pó í insta eðli sinu ástríkur faðir, svo óendan- lega auðugur að líknandi elsku, að pótt svo syndir vorar sjeu sem skarlat getur liann gert pær hvitar sem mjöll, og pótt pær sjeu rauðar sem purpuri, pá getur hann gert pær sem ull fyrir hvern pann er piggja vill náð hans framboðna í Jesú Kristi, sem opinberanda hjálpræðisins og sem forlíkanda mannanna við guð. / Jesú Kristi hafði Vídalin sjálfur höndlað guð og náðarhjálpræði hans. Pví preyttist hann ekki heldur á að brýna pað fyrir öðrum, að ekki sje neitt nafn annað undir himninum en nafnið Jesú Kristur, sem oss sje ællað að verða hólpnum í. Ilann vill í pví efni eins og Páll ekkert sjer til sáluhjálpar vita, nema Jesúm Krist og hann krossfestan! Eigi pví Jón Vídalín sem flytjandi guðs orðs erindi til peirrar kynslóðar, sem nú er uppi, með vitnisburð sirn um syndina, pá á hann ekki síður erindi til henn- ar með vitnisburð sinn um náðina og pað einmitt sem náðarhjálpræði guðs í Jesú Kristi. Pví að eins og margir vjlja hjálpræðið öðlast á nálægum tíma án yfir- bótar, án pess að segja skilið við syndina, eins vilja margir á vorum tímum náðina öðlast án Krist Jesú, byggjandi vonir sínar á ýmiskonar heilaspuna, mann- legum ímyndunum og draumórum. Pað er trúa mín, að ef rödd Jóns Vídalíns hrein og djörf hefði lifað með pjóð vorri á nálægum tíma, pá hefðu peir vissulega verið færri, en nú eru með pjóð vorri, sem mist hafa sjónar á pvi, að syndin og náðin eru pau meginskaut hjálpræðisboðskaparins, sem alt snýst um, og brestur skilning á pví, að náðarlijálpræði guðs er bundið við pann guðs- og mannsins-son Jesúm Krist svo að hvergi er hjáipræðis að vænta nema hjá honum og fyrir hann! Og hefði andi Jóns Vídalíns helgaður og mótaður af anda drottins Jesú Krist fengið að starfa með pjóð vorri fram á pennan dag, pá hefði vissulega minna borið á virðingarleysinu fyrir hinni »dýrkeyptu Jesú Krists brúði«, sem Vídalín lifði fyrir og hefur helgað hinn prenlaða vitnisburð trúar sinnar af sonarliug til ást- kærrar móður, — pá er pað trúa mín, segi jeg, að virð- ingarleysið fyrir krislilegri kirkju guðs hjer á landi hefði verið minna og áhugaleysið um liag liennar ekki eins tilfinnanlegt og nú er pað, eða mönnum jafn óljós og raun gefur vitni pakkarskuldin við pessa andlegu móður vora. Pví að pað er sanuleikur sem aldrei verð- ur hrakinn, að íslands pjóð stendur ekki í jafnmikilli pakkarskuld við nokkura stofnun aðra, sem með oss hefur starfað, sem við kirkju Jesú Krists, sem meðal pjóna sinna telur í fremstu röð Jón biskup Vídalín!

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.