Óðinn - 01.07.1920, Blaðsíða 37

Óðinn - 01.07.1920, Blaðsíða 37
ÓÐINN 85 legu velrild og ástúð allrar fjölskyldunnar, er lýsti sjer í öllu. Pað er almannamálið þeirra, er þar voru, að þeir muni lengi minnast þeirrar stundar. Á giftingardegi þeirra hjóna s. 1. haust færðu sveitungar þeirra þeim 800 kr. fjárupphæð að gjöf, og hafa þau hugsað sjer, að þar af yrði myndaður sjóður til líknarstarfsemi, sem bera mun nafn þeirra. Skrifað á sumardaginn fj'rsta 1920. Þorsleinn Konráðsson. & Páll ísólfsson. Páll ísólfsson er eflaust einna vinsælastur ís- lenskra listamanna, þó hann sje einna yngstur þeirra, fæddur 12. október 1893 í Símonarhúsum við Stokkseyri. Foreldrar hans eru ísólfur Páls- son, áður organisti, og Puríður Bjarnadóttir. En frá því um fermingu hefur P. í. verið á fóslri hjá föðurbróður sínum Jóni Pálssyni bankagjald- kera, sem áður var organisti Fríkirkjunnar í Reykjavík, og konu hans Önnu Adólfsdóttur. P. t. lærði snemma að leika á orgel og var hneigður fyrir það og naut tilsagnar í heimahúsum jafn- framt því, sem hann lærði nótnaprentun í prent- smiðju D. Östlunds fyrst eflir að hann kom til Reykjavikur. En föðurb'róðir lians, sem snemma þóllist sjá, að liann hefði meiri liæfileika en al- ment gerðist í þessa átt, fór þá að reyna að afla honum meiri mentunar en lijer var kostur á og varð loks að ráði, að P. í. færi til Þýskalands haustið 1913. Þar hefur hann síðan stundað nám við einn stærsta og þektasta hljómlistarháskóla heimsins, í Leipzig. En þangað sækja árlega um þúsund nemendur víðsvegar að, hvítir menn, svartir og gulir. P. í. tók þar skjótum framförum og ávann sjer traust kennara sinna, og má m. a. marka það af þvi, að einn þeirra, sem þá var jafnframt orgelleikari einnar aðalkirkju borgar- innar, valdi P. í. úr öllum nemendahóp sínum til þess að gegna kirkjuembætti sínu, meðan hann inli af hendi herþjónustu sína í stríðinu. P. í. fjekk í fyrra 1800 kr. af styrknum til skálda og listamanna, en hefur annars engan opinberan styrk fengið. Aðalkennarar P. í. voru prófessor Karl Slraube, sem er heimsfrægur maður í sinni grein, í orgel- leik, prófessor Tischmuller í píanóleik og próf. Sitt í hljómfræði. P. í. hefur altaf stundað námið sleitulaust, síðan liann sigldi fyrst, nema árið 1915, er hann veiktist um tíma af ofreynslu. En til Reykjavíkur hefur hann ávalt komið á sumrin og haldið kirkjuhljómleika síðari árin. Hann hefur einnig haldið opinbera hljómleika í Berlín, Kaup- mannahöfn og í Bæheimi og fengið góða dóma söngfróðra manna. T. d. sagði eitt þektasta músik sjerfræðirit Pýskalands, Algm. Musik Zeitung, að hljómleikur hans í Berlín, hefði sýnt »afburða orgelsnilling á háu stigi (einem orgelvirtuosen Páll ísólfsson. groszen Stiles) og að hann væri ekki einasta Jistasnjall í ytri meðferð laganna (ein hervorrag- ender tecknicher), heldur næði hann einnig insta eðli þeirra mjög vel (ein ausdruchskunstler hohen Ranges)«. P. í. hefur þó spilað ýms stærstu og erfiðustu lög eftir t. d. Mendelsohn, Brahms, Bach og Reger og var sá síðastnefndi kennari hans um eitt skeið. Sjálfur hefur P. í. samið nokkur lög. P. í. fylgist vel með, er kátur og skemtinn og fróður um marga hluti, einnig utan sinnar sjer- greinar, prúður í framgöngu og reglumaður og áhugasamur um alt það, sem að sönglist lýtur. M. a. er honum stofnun hljómlistarskóla hjer mikið áhugaefni, og komist sú góða hugmynd í framkvæmd yrði henni og Islensku músiklífi sjálf- sagt ekki óskað annars betra, en að eignast kenn- ara og forustumenn á borð við Pál ísólfsson. V. P. G.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.