Óðinn - 01.07.1920, Blaðsíða 44
92
ÓÐINN
Hátíðahöldin
í Suður-Jótlandi.
Það var mikil gleði á ferð-
um í Danmörku í sumar, er
Norður-Sljesvík sameinaðist
konungsríkinu samkvæmt und-
angenginni almenningsatkvæða-
greiðslu. Var sameiningin hald-
in hátíðleg í Khöfn 9. júli, en
í Suður-Jótlandi 10.—12. júlí.
Tveimur mönnum af fslandi
var af dönsku stjórninni boðið
til hátíðahaldanna, og fór Jóh.
bæjarfógeti Jóhannesson, forseti
sameinaðs alþingis, sem full-
trúi íslensku sljórnarinnar, en
ritstjóri þessa blaðs sem fulltrúi
íslenskra blaðamanna. í »Lög-
rjettu« hefur verið sagt all-
ítarlega frá hátíðahöldunum
og frá suðurjótsku málunum
jTirleitt, baráttu Dana þar fyrir
viðhaldi tungu sinnar og þjóð-
ernis og þeim mönnum, sem
best hafa gengið þar fram í
þeim málum. Sameiningarhá-
tíðahöldin í Suður-Jótlandi
voru mjög stórfengileg og við-
hafnarmikil og viðtökurnar,
sem Kristján konungur X.,
fjölskylda hans og fylgdarlið,
fjekk þar hjá öllum almenn-
ingi hinar hjartanlegustu.
Morguninn 10. júli reið kon-
ungur á hvítum hesti suður
yfir landamærin, undir skraut-
boga, sem þar hafði verið
reistur. Óteljandi mannfjöldi
var beggja megin vegarins. P.
J. Refshauge sjálfeignarbóndi
bauð konung þar velkominn,
i nafni Suður-Jóta, en kon-
ungur svaraði og bauð Suður-
Jóta velkomna heim. Þetta er
sýnt hjer á efri myndinni. En
aðalhátíðin var haldin daginn
eftir á Dybbölhæðum. Þær eru
nafnkunnar í sögu Danmerkur,