Óðinn - 01.01.1924, Side 22

Óðinn - 01.01.1924, Side 22
22 ÓÐINN Flæmast þeir á fossum fimbulrasta; rekst hver annan á. Einn flýtur uppi, annar í kafi fram að Feigðarströnd. Roðnir geirar glampa; gráir mekkir stíga himinhátt. Vfir öldur eldi lostnar steypist banablóð. Svellur mjer í sálu sárum hreimi hafsins hrannagrýr. — Skilar hverri skeið úr skauti hranna fall — að Feigðarströnd. Jón Magnússon. V Þrælar Ingólfs. Þeir þræða með vogum um víkur og lón, um vegleysur, urðir og sanda. Og hugrakkir sigra þeir hættur og tjón og hindranir ógengra stranda. Þeir staldra um stormkaldar nætur með stirða og ilsára fætur. Þótt virðist það skamt er þeim ganglúnum gengst um grjóthrjúfa útnesja-tanga, að kanna sem nánast og komast sem lengst er kapp þeirra vordaginn langa. Og sveittir með sólbrenda vanga með sænum þeir leitandi ganga. En náttúran ljómar þeim íslenska öll sem algróinn frjóviða-baðmur: Þær heiðarnar bláu og himingnæf fjöll og hafið sem útbreiddur faðmur. í lofti fer víðfleygur vængur, í vötnunum straumkleyfur hængur. Og hlutverkið unnið að endingu var, og öndvegissúlur þar reistar sem hamingja Ingólfs af hafi þær bar. Og hollvilja guðanna treystar þær standa, þótt stormarnir þjóti og stofnviði aldanna brjóti. En þrælarnir fóru þar fyrstir um land, sem frægt hefur landnemans saga. En spor þeirra grófust í gleymskunnar sand um gjörvalla tímanna daga. — Þeir vegsemdir herra síns hófu, en hlut þeirra örlögin grófu. Og enn ganga fótsárir lýðir í leit um langvegu nætur og daga. En heimurinn ekkert um árangur veit, því oft er hún gleymin, hún Saga. — Þeir trúlyndir erja um aldir en eru þó gleymskunni faldir. Jón Magnússon. SL Finnur Björnsson og Bergþóra Helgadóttir hjón á Geirólfsstöðum í Skriðdal. Finnur Björnsson er fæddur á Geithellum á Álfta- firði 20. desember 1851. Faðir hans var merkisbónd- inn Björn Antóníusson á Geithellum, síðar Hnaukum og loks á Flugustöðum, þektur um alt Austurland undir nafinn: Björn á Flugustöðum. Kona hans og móðir Finns var Kristín Sigurðardóttir, hreppstjóra í Múla, Brynjólfssonar prófasts í Eydölum. Faðir Björns á Flugustöðum og afi Finns var Antóníus hreppstjóri á Hálsi í Hálsþinghá, Sigurðsson, bónda í Hamarsseli, Antóníussonar, bónda á Hamri, Árnasonar, bónda í Bragðavallaseli, ]ónssonar, prests á Hálsi, Höskuldssonar (þó er nokkur vafi á því, hvort Árni var sonur sjera Jóns Höskulssonar, eða hann var ættaður úr Árnessýslu). Þetta var góð bænda- ætt, mann fram af manni. Móðir Björns á Flugustöð- um og amma Finns var síðari kona Antóníusar hrepp- stjóra á Hálsi, Þórunn Jónsdóttir, stjúpdóttir Guð- mundar prests Skaftasonar í Berufirði. Faðir hennar var Jón Jónsson bóndi á Brimnesi við Seyðisfjörð. Kona hans og móðir Þórunnar var Sigríður Jónsdótt-

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.