Óðinn - 01.01.1930, Síða 1

Óðinn - 01.01.1930, Síða 1
OÐINN 1.—6. BLAÐ ]ANÚAR-]ÚNÍ 1930 XXVI. ÁR Gísli Guömundsson gerlafræðingur. Hann andaðist 26. sept. 1928 á besta aldri og varð þar mikill mannskaði. Vinir hans og fjelagar í Iðnaðarmannastjett Reykjavikur töldu hann einn af sin- um allranýtustu mönnum, en sú stjett á nú marga menn, sem kunnir eru að dáð og dugn- aði. Gísli var fædd- ur 6. júlí 1884 að Hvamsvík í Kjós, en fluttist ungur með foreldrum sín- um, Guðm. Guð- mundss. og Jakob- ínu Jakobsdótlur frá Valdastöðum, til Reykjavíkur, og var síðan um eilt skeið í Melshúsum á Sel- tjarnarnesi, hjá Jóni Jónssyni útvegs- bónda. En á æsku- árum nam hann gosdrykkjagerð er- lendis og gekst síð- an fyrir stoínun gos- drykkjaverksmiðj- unnar »Sanitas« 1905, og fengu vörur hennar brátt svo gott orð á sig, að þær útrýmdu að mun erlendum gos- drykkjum frá íslenskum markaði. Nokkru síð- ar tók Gísli að stunda nám í gerlafræði erlendis, fyrst í Kaupmannahöfn og síðan í Þýskalandi, og varð vel að sjer í þeirri fræðigrein. Einnig dvaldi hann um tíma í Austurríki og Frakklandi. Retta nám hans var hið þarflegasta og bar hjer góðan árangur. Og þegar gerladeild var stofnsett við efnarannsóknarstofuna hjer, var Gísli sjálf- kjörinn til þess að taka hana að sjer. Eftir fráfall Ásgeirs Torfasonar 1916 varð hann forstöðu- maður efnarann- sóknarstofunnar og hafði það starf á hendi til 1921. Á þeim árum átti hann mestan þátt í því, ásamt Jóni heitn- um Kristjánssyni prófessor, að smjör- líkisgerð hófst hjer í bænum, og hefur hún síðan þrifist vel, svo að nú er lítið af erlendu smjörlíki flutt til landsins. Hafði hann mikinn áhuga á því að auka og bæta innlenda vörufram- leiðslu og var sam- verkamaður eða ráðunautur flest- allra hjer, sem rjeð- ust í einhver slík fyrirtæki, og með þeirri starfsemi hef- ur hann unnið stór- mikið gagn. Eitt af þeim fyrirtækjum er öl- gerðin »Egill Skallagrímsson«, sem lærisveinn hans og starfsmaður frá »Sanitas«-verksmiðjunni, Tómas Tómasson, stofnaði og hefur rekið með miklum dugnaði. Gísli Guðmundsson gerlafræðingur.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.