Óðinn - 01.01.1930, Síða 16
16
ÓÐINN
Jón Kristjánsson prófessor.
Meðal hinna mörgu, sem dóu hjer úr inílúensupest-
inni haustið 1918, voru pau Jón Kristjánsson prófessor
og kona hans Pórdís
Benediktsdóttir Pór-
arinssonar kaupm.
Var Jón prófessor
aðeins 33 ára gamall,
fæddur 22. apríl 1885,
sonur Kristjáns Jóns-
sonar dómstjóra og
Önnu Pórarinsdóttur
Böðvarssonar pró-
fasts i Görðum á
Álftanesi. Hann út-
skrifaðist úr skóla
1904 og tók lagapróf
við háskólann i Khöfn
vorið 1909 og varð
pá um haustið auka-
kennari við Laga-
skólann hjer, en síð-
an prófessor við Há-
skólann. Auk pess
sem hann stundaði
vel fræðigrein sína
og embætti, hafði
hann vakandi áhuga
á ýmsum verklegum framkvæmdum og vann að peim
með miklum dugnaði. Hann byrjaði á jarðræktarfyrir-
tæki hjer sunnan við bæinn og reisti par býli, sem
Guðjón alpm. Guðlaugsson síðar keypti og kallaði Hlíð-
arenda, og býr hann par enn. Hann var og forgangs-
maður pess, ásamt Gísla Guðmundssyni gerlafræðingi,
að smjörlíkisgerð hófst hjer í bænum, eins og á er
minst fyr hjer í blaðinu, og fleiri voru pau nytjafyrir-
tæki, sem hann beilti sjer fyrir, svo að hann hafði sýnt
pess mörg merki, pótt hann fjelli ungur í valinn, að
hann átti í miklum mæli bæði dugnað og ágæta hæfileika.
heima, hver í sinni vistarveru, en þó greiður
gangur á milli, og þarna var golt að vera að
öllu leyti. Þarna sáum við alt gott og fagurt
fyrir okkur, og nutum þess í orði og verki alls
hins marga og góða heimilisfólks, sem umgekst
okkur sem góða og kæra vini og velkomna gesti,
leiðbeindi, greiddi og aðstoðaði í öllu, sem þurfti.
Þarna gaf og að lita, og renna grun i, hvert og
hvílíkt líf og starf slíks heimilis er: Alt af
nokkuð af systrum þess og læknum heima,
gangandi hljóðlega og góðlátlega um með mildu
fasi og yflrbragði meðal sjúklinga eða starfandi
að öðrum nauðsynjum, en aðrar gangandi í
stærri eða minni hópum úti um borgina hingað
og þangað, til að líkna þar, hugga og hjálpa.
En um máltíðir safnast þær aftur saman, svo
margar sem geta, um sameiginlegt býsna stórt
eða langt borð, til að neyta góðs eða óbrotins
matar, og þar með eru prestarnir oftast, annar
eða báðir, eftir því sem við verður komið; og
máltíðin er byrjuð og enduð með því, að hús-
móðirin, forstöðukonan, ung og geðug líknar-
systir, biður upphátt, stutta og einfalda bless-
unar og þakkar bæn, en mötuneytið alt lýtur
höfði í samúð á meðan. En samskonar borð-
bænasið vöndumst við einnig á öllum þeim
dönskum prestaheimilum, þar sem við neyttum
máltíðar, og komst jeg á þá skoðun, aðsásiður
eigi sjer stað á mörgum öðrum heimilum krist-
inna manna þar ytra. Verð jeg að játa, að þetta
kom mjer til að minnast þess, er móðir okkar,
systkina minna, var, í bernsku okkar, að kenna
okkur og reyna að venja okkur á, að biðja
Guð að blessa okkur máltíðina, hve lítilfjörleg
sem var, og þakka síðan fyrir saðninguna.
Blygðast jeg mín nú ekki fyrir að játa, að jeg
blygðaðist mín, með sjálfum mjer, við borð
þessa góða, biðjanda fólks, sem var að gefa
mjer með sjer góða og gnóglega fæðu; og þyk-
ist jeg vita að fjelagar mínir hafi fundið eitt-
hvað líkt til. En jeg var farinn að kunna einkar
vel við þennan fagra og eðlilega sið áður lauk;
og síðan rninnir hann mig oft á, að ganga ekki
eins og skepna til máltíðar, en hugsa þá i
hljóði og kyrþey til gjafara gæðanna. Má þetta
koma manni til að hugsa til allra, sem svangir
eru án saðningar víðsvegar um heim, eða til
miljónanna, sem sagðar eru hungurmorða nú,
eða liggja nærri hungurdauða í Kína og víðar —
að þeim mundi þykja bænar- og þakkarvert
daglega brauðið — daglegi maturinn og drykk-
urinn o. s. frv. Alt þetta, og fleira, hef jeg að
segja frá veru okkar á þessari góðu og göfugu
stofnun og af blessuðu fólkinu þar, sem gerði
ekki heldur endaslept við okkur, nje ljet sjer
leiðast vera okkar þar. Því að húsmóðirin bauð
okkur aftur velkomna sem gesti sína, ef við
yrðum aftur þar á ferð; svo fylgdi heill hópur
fólksins okkur til dyra og kvaddi mjög ástúð-
lega, og loks voru góðir og kærir fulltrúar stofn-
unarinnar látnir mæta og kveðja okkur á hafnar-
bakka við heimförina frá Höfn.
XI. Þá hef jeg talið það, að við fengum, auk
framantalins, einnig að líta inn og litast um á
Jón Kristjánsson prófessor.