Óðinn - 01.01.1930, Page 25
Ó Ð I N N
25
aði síðan smiðar í Reykjavík og víðar fram til ársins
1907, er hann rjeðst til þáverandi landsverk-
fræðings, Jóns Þorlákssonar, og vann hjá honum
við smíð F'njóskárbrúarinnar; er hún fyrsta stein-
brúin, sem gerð hefur verið hjer á landi, og var þá
lengsta brú á Norðurlöndum (um 87 metrar). Einar
vann að brúargerðum víðsvegar um landið fram til
ársins 1917, enda munu á þeim árum hafa veriðgerð-
ar fleiri brýr hjer á landi en áður eða síðan á jafn-
mörgum árum; hafði Einar jafnan verkstjórn á
hendi, og mun hann þau árin hafa sjeð um smiði á
einum 40 brúm. Þetta var erfitt verk og kald-
samt bæði fyrir Einar og menn hans, því að
ekki var aðbúnaður ætið sem bestur, og fór það
eðlilega eftir staðháttum og veðráttufari, en Einar
eigi svo skapi farinn, að hann hlitði sjer framar
öðrum.
Á árunum 1918—1919 gerði Einar 2 hafskipa-
bryggjur, aðra á Siglufirði en hina á Oddeyri,
en síðan og til þessa dags hefur hann stundað
eingöngu húsasmíðar, og unnið mest í samn-
ingsvinnu, einkum hin síðari árin. Hann hefur
ásamt nokkrum mönnum öðrum tekið að sjer
að reisa sum stærstu húsin, sem gerð hafa verið
hjer á landi, svo sem Landsbankann nýja, kvik-
myndaliúsið »Gamla Bíó«, hús skóverslunar
Lárusar G. Lúðvíkssonar, verslunarhús Stefáns
Gunnarssonar, og nú síðast Hótel Borg, sem er
stærsta og vandaðasta gistihúsið, er reist hefur
verið hjer til þessa dags.
Hjer hefur þá í stuttu máli verið getið nokk-
urra helstu bygginga, er Einar hefur sjeð um
smíðar á, en þó er margt ótalið af smærri hús-
um, sem hann hefur verið látinn reisa; eru þau
svo mörg, að ógerlegt er að geta þeirra hjer
allra. En það, sem þegar hefur verið talið, ætti
að nægja til þess að sýna, að þar er ekki neinn
hversdags- eða miðlungs-maður á ferð um starf-
semi, sem Einar er. Bað er mála sannast, að
hann er vikingur til allra verka, ósjerhlífmn og
áhugasamur, og má kalla svo, að honum falli
aldrei verk úr hendi. Eru slíkir kostir eigi al-
gengari en svo nú á siðari tímum, að það mun
mega telja happ hverju þjóðfjelagi að eiga marga
Einars lika um dugnað og atorku.
Eigi mun það mjög algengt um verkstjóra,
sem eiga jafnmörgum mönnum að stjórna, sem
Einar hefur haft um dagana, að þeir sjeu jafn
vinsælir sem hann, en Einar er maður lipur í
samvinnu og svo jafnlyndur, að sjaldan skiftir
hann skapi, hjálpsamur mjög, vinfastur og gleði-
maður mikill.
Einar kvæntist haustið 1911 Sigrúnu M.
Sigurðardóttur; eiga þau hjón 6 börn og eru
þau öll í foreldrahúsum; hafa þau hjónin jafnan
búið í Reykjavík.
T. Kr. Pórðarson.
m
Kristín Ólafsdóttir
frá Kálfholti.
Kristin Ólafsdóltir.
I.
Jeg hnípinn stari’ og hef engin ráð,
en hrópa’ út í myrkrið svarta:
Hvar ertu, Drottinn, og öll þín náð,
er ofreynt þitt föðurhjarta?
Þú hirðir ekki um hróp nje vein.
Þin höfuðregla er greypt í stein:
»Þú hismið mátt kveina’ og kvartal«
Það tjáir ei neitt að deila’ um dóm,
sem dauðinn með valdi fremur.
En alt verður þögn og auðn og tóm,
er úrslita-merkið kemur.
Því böndin sterkustu’ ’ann brýtur í tvent,
og brotunum þeim er á tvistur hent.
Þau lögin hann sjálfur semur.
Jeg skil ekki hót þann skuggabald,
er skelfir með ógn og kviða.
Og lítil er huggun, þó vanans vald