Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Síða 51
133
(Sturl. 9, 37: III, 260). f>að getr hans síðast, að hann
var einn þeirra þriggja bónda úr Eyafirði, er sóru Há-
koni konungi skatt af íslandi á alþingi 1262 (Sturl.
10, 12: III, 298 og víðar).
f»að er auðsætt, að Hallr á Möðruvöllum hefir
verið mikilsvirðr og atkvæðamikill höfðingi, þótt eigi
hefði hann riki og gæti því eigi jafnokazt þeim Kol-
beini Arnórssyni eða |>órði kakala, er höfðu heil hér-
öð til forráða. Hann kemr hvervetna fram sem góð-
gjarn og friðsamr höfðingi, og hefir eflaust átt þaðlof
skilið, er Einarr þorsteinsson bóndi úr Reykjahlíð
pórðarsonar berr honum í vísu þessarri:
Öll unna hjú Halli,
Hallr er blíðr við alla,
getr eigi slíka í sveitum,
sveit þótt víða leiti;
kynnist mörgum manni
mannbaldr, sá er fremr aldir ;
full er ölværð öllum
öll á Möðruvöllum63.
5>að getr eigi verið vafamál, að faðir Halls á
Möðruvöllum hefir verið Jón Örnóifsson á Möðruvöll-
um, og að Hallr eftir föður sinn hafi setzt að þeirri
jörð sem föðurleifð sinni, og að Möðruvellir hafi þann-
ig eigi sölum gengið, en ávallt haldizt í sömu ætt,
þótt kvennkné hafi í milli komið, alla þrettándu og
alla fjórtándu öld og fram á hina fimmtándu allt í frá
Jóni Örnólfssyni til Lopts hins ríka, og lengi síðan,
sem kunnugt er. Jóns Örnólfssonar á Möðruvöllum er
65) Miðsaga Guðmundar byskups Arasonar 23. k. : Bysk.
I, 593, sbr. B. B. Sm. æf. I, 1, 138. bls. og J. þ. skýring-
ar á vísum í Guðm. s. bysk. Arasonar, o. s. frv., Bvík
1872, 24. bls.
9'