Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Síða 3

Eimreiðin - 01.09.1902, Síða 3
Brá ekki vitund né vék, þó Viðstaddir augu’ á hann hvessi — Maður laut öðrum að eyra Inti til: Hver er hann, þessií Böguleg bið var á svari, Byrjunin glápandi furða; Loksins dró hugsunin hæverskt Háðbros um andlit ins spurða. »Ó, hann! það er foringi fyrndur, Flæmdur í bardaga loknum; Seinasta vofan í valnum Af varhluta mótstöðu-flokknum.« Glampaði öldungsins auga Óvörum, snöggvast við svarið — í*að koma stundum þær stundir Stopular, því er svo farið, Pegar eitt augnablik opnast Útsýni, launkofi, smuga; Örlögin blasa við augljós Eldingum leiptrandi huga. Öll fyrir augum hans stóðu Erindislokin í hilling: Alt var ei selt fyrir sættir! Svarað því gat hann með stilling — Vit þú, að við unnum nokkuð, Við, sem þó óhöppum mættum, Forðuðum lýðnum frá læging, Landinu minkunar-sættum. III. ANDI LAMPANS. Sko, hann situr svo sem dáinn: Svefn í höfði, opin bráin. — Dagur inn um gluggann gægist Gráblá kinnin, augun rauð; Höndin máttlaus, hitasnauð, Eins og líf úr limum drægist.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.