Eimreiðin - 01.09.1902, Side 5
165
Mök við slíkan anda eiga
Eftir þetta, lát þér geiga.
Earna sérðu sjálfur merkin:
»Samson, kappa, kreptan fjötrum,
Konungsson í betli-tötrum,«
Anda lampans vildar-verkin!
Vilt þú reika’ í ríkum borgum
Ráfandi, og milli bæja,
Bjóða kaup á tómum torgum,
Tjóni með — sem fíflin hlægja.
Framsýn reynsla fyrir spáir:
Forlög hans þú kjósir, þráir.
Ekki tekst þér hug þinn hylja
Hót með það sem leiði grun um!
Ograð þér með aðvörunum
Svo hef’ ég, með viti’ og vilja —
Anda lampans eignast hvetur
Áfýsn þig með tæli-vonum —
íslendingur, ef þú getur,
Ofurselur þú þig honum.
Framfarir Vestmanneyja.
Eftir bORSTEIN JÓNSSON lækni.
Vér eyjarskeggjar erum lítið og nokkuð afslrekt mannfélag,
og það er bæði fróðlegt og þarflegt fyrir oss að líta aftur fyrir
oss og að gæta, hvernig oss hefir farnast að undanförnu, þvort
það hefir rekið eða gengið, hvernig ferðalagið hefir lánast, og svo
geta menn að því athuguðu, einkum hin nýrri kynslóð, sett sér
ný takmörk, ný markmið, er æskilegt sé að keppa að. Fg segi
ný takmörk, af því ég ætla, að fremur hafi gengið en rekið hjá
oss um hríð, að menn hafi náð nokkrum settum markmiðum, og
eigi því að keppa að öðrum. Pað er ætlun mín í kvöld, að lýsa
fyrir yður eða skýra frá ástandinu hér hjá oss í nokkrum atriðum
á síðari hluta hinnar 19. aldar, sem nú var að kveðja, og leitast.