Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Side 12

Eimreiðin - 01.09.1902, Side 12
172 farg hvíldi á oss eyjarbúum fram yfir 1880. Hvað lítil samgöngu- bót getur gert að verkum, má sjá á einu dæmi, sem ég vil til- færa. Árið 1881 kom jagtin Josephine hingað með kolafarm frá Reykjavík. Retta hafði þá verkun, að kaupmenn hér þegar settu ofnkol niður í 5 kr., og lækkuðu þau síðar enn meir; áður höfðu þeir tekið 6, 7 uppí 8 kr. fyrir skippundið, en nú urðu þeir hræddir um, að eyjarbúar færu að sækja kol og jafnvel fleiri nauð- synjar til Reykjavíkur, ef þeir lækkuðu eigi verðið á þeim. Mest hefir breytingin orðið á síðasta áratug. Mönnum hefir lærst að panta vörur fyrir peninga beint frá útlöndum, og nú eru menn farnir að senda vörur til umboðsmanna erlendis, og panta aftur útlendar vörur fyrir; fá menn þannig peninga fyrir vörur sínar og fyrir;þá aftur vörur með alt að l/3 lægra verði en hér gjörist, og þetta hefir aftur leitt til þess, að aðalverzlunin hér er farin að selja vörur með peningaverði, sem aðeins er lítið eitt hærra en pöntunarverðið. Fyrir 30 árum var hér mikil vesöld, fátækt og kaupstaðarskuldir, en nú munu fæstir skuldugir í búðum, en flestir eiga inni eftir hin síðustu góðu aflaár. Menn verða þá fyrst sjálfstæðir, er skuldahelsið er af þeim leyst, og þeir orðnir svo efnum búnir, að þeir geti fengið sér ársforða, án þess að taka lán hjá kaupmönnum með okurvaxta framfærslu þeirra. (Um skaðvæni skuldaverzlunar sjá Eimr. VI, 220). Síðan fyrir miðja öldina vóru hér 3 verzlanir, en svo minkaði verzlunarmagnið svo, að 2 duttu úr sögunni snemma á 10. tug aldarinnar, svo hér varð þá um sinn aðeins' ein verzlun eftir, og þótti ærið harðdræg. Pað er því gleðiefni, að hér er á síðustu árum að rísa upp ný innlend verzlun, sem þegar hefir vaxið talsverður þráttur, og bætt verðlag á ýmsum varningi að verulegum mun; hygnir menn óska því þessari verzlun velfarnanar. Svo sem getið er um hér að framan, hafa einatt verið lögð fremur þung sveitarút- svör á verzlanirnar hér, en að öðru leyti hafa þær eigi, svo teljandi sé, stutt eða styrkt nein nytsemdar- eða framfarafyrirtæki; þótt þess hafi verið farið á leit, hefir það enga áheyrn fengið. Stærsta verzlunin hér eða umboðsmaður hennar hét (um 1890) að borga 25 kr. tillag á ári til ekknasjóðsins hér, en hætti því aftur eftir fá ár; þótti mönnum það lítilmannlegt af stórauðugum kaup- manni. Samgöngurnar hafa smásaman verið að batna hina síð- ustu 2 áratugi, og síðan strandbátarnir komust gang, má segja

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.