Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Page 27

Eimreiðin - 01.09.1902, Page 27
i»7 barna! Findu kraft guðs í sál þinni og blóði! Snú þú aftur með týnda syninum, og muntu óðara endurnærast í faðmi föður þíns, sem sér þig álengdar. En tign þín, hinn guðlegi kjarni þinn er í vilja þínum og frjálsum viðburðum. »Hvað var Jesús?« spyr dr. Kj. Hann svarar: »F*að, sem maðurinn á að verða; það sem maðurinn verður, þegar hann nær aldurshæð Krists.« Dr. Kj. bar heita og háleita elsku til Jesú Krists. En þó hann væri í fyllri guðs mynd en vér, þó hann væri ljómi hans dýrðar og ímynd hans veru, var hann maður eins og vér, og ekkert annað en maður, en — gætið þess — hann var um leið fyrirmynd manns- ins, fullkominn maður. Trúargreinin um Jesú, sem aðra per- sónu þrenningarinnar, bætir engu við hann nema guðfræðilegri dýrðarglýju, sem enginn skilur án hártogunar, en sem deyfir og deyðir trúna á manneðlið og innrætir oss, rétt skiliö, of þröngar og blendnar hugmyndir um vorn himneska föður. En guðs son og frelsara, fræðara og fyrirmynd kallaði dr. Kj. Jesúm frá Naza- ret, og svo gjöra enn allir sannir lærisveinar þessa guðlega kennimanns. Maíth. Jochumsson. Há vifoss. Fegurstir fossar verða þar, sem vatnsbreiða hraðar fram að brún, hvelfist síðan yfir haná og steypist fram af óskoruð öll breiðan. Svo er um t. a. m. Skógafoss; honum er bezt lýst með þessum orðum Jónasar: Hann breiðir fram af bergi hvítan skrúða. Foss sá, er hér ræðir um, er nú að vísu ekki eins skrautlegur eða velvaxin og Skógafoss, en hann er miklu hærri, um 400 fet á hæð, og mun því vera einna hæstur foss á landinu, þeirra sem nokkurt vatnsmegn er í. Hávifoss — er ég legg til að svo sé nefndur — verður þar, sem Fossá1 fellur ofan af hálendinu. Áður var undir fossinum hylur mikill, en hann fylti af grjóti jarðskjálftasumarið (1896). 1 Fossá rennur í Pjórsá.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.