Eimreiðin - 01.09.1902, Page 35
!9S
ánægjulega og áreynslulaust, eins og þeir séu að hafa sokka-
skifti.
Af þessum útlendu mönnum, sem seztir vóru hér að, eða niðj-
um þeirra veit ég ekki til, að einn einasti hafi farið héðan aftur,
væri honum lífvænt hér, ekki einu sinni heim til ættlands síns, því
síður til Ameríku.
En það, sem þessir menn hafa þegar unnið að eflingu at-
vinnuvega og ýmsum framkvæmdum, bæði einir og í samvinnu
við dugandi menn innborna, er svo margt og svo mikils virði, að
þess munu lengi sjást menjar her eystra víðar en á Seyðisfirði, þó
það sé miklu mest hér.
Pví Seyðisfjörður er líka frábrugðinn hinum bæjunum í því, að
hér eru miklu meiri mannvirki, t. d. í stórskipabryggjum, en í
nokkrum öðrum stað á landinu, því hér geta hæglega legið við
bryggjur 5—6 gufuskip í einu og taka víða ekki grunn, þó þau
væru mörg þúsund lestir aö stærð.
Pessar og aðrar framkvæmdir hér stafa af því, að hver maður,
útlendur sem innlendur, hefir lagt sinn skerf til af reynslu og
og áhuga, sem hann hafði með sér að heiman, enda ekki ólíklegt,
að þeir hafi helzt orðið til að taka sig upp og leita fyrir sér,
hingað eða annað, sem áræðnari vóru og dugmeiri en almenningur.
Petta er, í fám orðum sagt, það sem helzt greinir Seyðisfjörð,
nú sem stendur, frá hinum bæjunum að útliti og félagslífi, og
þær orsakir taldar, sem helzt má ætla að liggi til hvorstveggja:
Bænum svipar til útlendra nýlendubæja, og orsökin er hér, sem
þar, að hann hafa bygt menn úr ýmsum áttum og ýmsum lönd-
um og gert það á fám árum.
þessi munur hverfur auðvitað með tímanum, en hann er engu
að síður svona nú og því skylt að geta hans.
Að öðru leyti verður lýsing Seyðisfjarðar auðvitað lík lýsing-
um hinna bæjanna, nema að því leyti, sem staðhættir og rás við-
burðanna hljóta alt af að gera nokkurn mun á útliti bæjanna og
viðskiftalífi, þó ekki sé tekið tillit til þess, sem getur þó haft sína
þýðingu, að tveir menn geta gefið allsólíkar, jafnvel gagnstæðar
lýsingar af sama staðnum.
Hér verður nú Seyðisfirði lýst stuttlega, eins og hann er nú
um þessi aldamót, og það einkum tekið til, sem ætla má að þeim
verði helzt forvitni á að vita, sem rekja vilja sögu bæjarins og
bera útlit hans og ástand nú saman við það, sem síðar verður,
i3!