Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Síða 43

Eimreiðin - 01.09.1902, Síða 43
203 vegna birtunnar, að bygg þroskast á 2—3 vikna styttri tíma norður á Finnmörk en suður í Guðbrandsdölum. Þetta hvorttveggja eru ein- ungis sennilegar getgátur, sem bygðar eru á sterkum líkum, en eru ekki enn þá vísindalega sannaðar. Hið lakasta við ritið er, að í það hafa slæðst ýmsar villur; en nokkrar þeirra eru ef til vill prentvillur. Þannig segir höf. á bls. 7, að 100 'B' af hráu grasi léttist um 70—80 við venjulegan heyþurk, en á næstu bls. á undan hefir hann sagt, að þurefni jurtanna væru hér um bil x/ö af þyngd þeirra; nú inniheldur þurkað hey frá 10—2o°/o vatn, og ætti því hrátt gras ekki að léttast nema 55—7 5°/ovið þurk- inn. Á bls. 89 virðast mér tölurnar 1:250 og 1 : 100—150 ekki geta átt við faðmatöluna, sem til er tekin milli garðanna, heldur muni 1 : 320 og 1 : 160—240 vera réttara, svo framarlega sem vatnið á hvergi að vera dýpra en 15 þuml. eða grynnra en 6 þuml. Á bls. 100 telur höf. feitina kolvetni (Kulhydrat?). Á bls. 102 er sagt, að kúatað innihaldi 38,67 °/o holdgjafa, 14,66 °/o fosfórsýru og 53,34 °/o kali, en þetta á að líkindum að vera: 0,3867 °/o, o,1466°/o og 0,5334°/o. Á bls. 106 segir höfi, að víðast muni betra að taka mold úr harðvelli en mýrum, til að blanda í áburðinn; þetta er alveg rangt, og mold úr óræktarmóum ætti ekki að nota til áburðar, ef kostur er á öðru betra; en það verður að þurka og viðra mýramoldina vandlega, áður en hún er notað. Á bls. 107 tilfærir höfi, hve mikið mold innihaldi af hold- gjafa, og liggur beinast við að álíta, að hann eigi við harðvellismold- ina, sem hann er nýbúinn að ráðleggja að blanda áburðinn með; en þær tölur, sem hann tilfærir, geta ekki átt við annað en mómold (svarðarmold) eða góða mýramold. Á bls. 136 telur höfi hundagras (Dactylis glomerata) á meðal innlendra fóðurjurta, en ég veit ekki til, að það vaxi óræktað á Islandi, og hvergi hefi ég séð það talið með íslenzkum jurtum. Þó ég hafi fundið margt athugavert í ritinu, þá tel ég það þó engan veginn einskis nýtt, og mér er það full ljóst, hve mikið vanda- verk það er, að semja íslenzka jarðræktarfræði, þar sem nálega engar rannsóknir á íslenzkum jarðvegi eða jurtum hafa verið gerðar, heldur verður að byggja næstum alt á útlendri þekkingu. Einnig verða erfið- leikarnir tvöfaldir, þegar rúmið er svo takmarkað, að jafnyfirgripsmiklu efni, og þetta er, verður að koma fyrir í svona litlu kveri. Víða í kverinu eru líka góðar bendingar, sem gætu komið að talsverðu gagni, ef eftir þeim væri farið, einkum í köflunum um framræslu, áburð og túnrækt; tekur höf. þar ýmislegt fram, sem hver einasti bóndi á land- inu þarf ekki einungis að vita, heldur líka að breyta eftir. Þó eru ýms atriði í þessum köflum, sem ég er höf. ekki samdóma um, en sem að sumu leyti hafa ekki mikla þýðingu, en að öðru leyti liggja fyrir utan takmark þessara lína. Málinu á ritinu er viða ábótavant, og getur því valdið misskiln- ingi á stöku stað. Það er enginn efi á því, að höf. hefir mjög góðan og lofsverðan vilja á að leiðbeina alþýðunni í þeim greinum, sem að búnaði lúta; en óskandi væri að honum tækist að vanda fráganginn á næsta riti sínu nokkru betur. “ Stefán Kristjánsson.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.