Eimreiðin - 01.09.1902, Page 47
207
»Hingað brunar Heimdallur,
«honum Valtýr ræður,
»blár og digur berserkur,
»bændum gestur skæður.
»Hefir fjöld af fallbyssum
»fantrinn til að stríða;
»hér mun ekki’ á Hornströndum
»holt í kyrð að bíða.
»Skýrt hefr Magnús mér því frá,
»muni ’ann þessa daga
»landið okkar suðr í sjá
»svikull ætla’ að draga.
»Haldið þið, piltar, Hornið í,
»hér þarf fast að standa;
ssendið mig í málma-gný
»móti þessum fjanda.
»En ef þið hans eflið lið
»eða fylgið honum,
»danskir verðið þrælar þið
»þá á galeiðonum.
»Sonum verður skipað skjótt
»að skjóta feður sína;
»þá mun dauðans næðings-nótt
»nísta ættjörð mína.
»Ég á »órótt ólgu blóð«
»eg skal standa’ og veijast
»og með hug og hetju-móð
»hermannlega beijast.« —
Hornstrendingum heldur brá,
hvítnuðu þeir í framan.
sKjósum Hannes Hafstein þá!«
hrópuðu allir saman.
Frá kosning séra Arnljóts Ólafssonar segir svo:
Ljótur gamli lengi hafði
legið þá í kör;
að sér rekkju-voðum vafði
vopna aldinn bör.
Sér á vinstri síðu kló ’ann,
svo í brækur fór;
hart á lærið hægra sló ’ann,
hét á Krist og Éór:
»»Æðstu þekking« ellin veitir,
»á mér þetta sést;
»heyri allar hraustar sveitir,
»hvað mér sýnist bezt:
»Se1jið mig í sæti Bensa,
»svo er bætt vort tjón;
»enn mun karlinn kunna’ að skensa
»kjaftfor þingsins flón.
»Hörmung er, ef hér á láði
»heimskan skjöldinn ber:
»ég vil Magnús minn að ráði
»mektugr öllu hér.
»Bankann þarf ei—Þórshöfn dugar,
»þar er Snæbjörn minn;
Ȏg skal flytja fegins-hugar
»fram þau stórmælin.
»Ljótur hræðist aldinn eigi
»atför Valtýings;
»máske karli koma megi
»kviktrjám á til þings.« —
Að svo mæltu út af féll hann —
úti’ um þingreið var;
enginn vildi’ í elli hrella’ ’ann —
og þeir kusu’ hann þar.
í frásögunni um kosningarbaráttuna í Vestur-Skaftafellssýslu eru
meðal annars þessar vísur:
Doktor Forni fúll í svörum
fór með kukl og seið;
skaut hann mörgum eitur-örum,
austr á Síðu reið.
Kjörþingsdaginn röðull roða
reifar engi’ og tún;
glit af skærum geisla-boða
gylti fjallabrún.