Eimreiðin - 01.09.1902, Blaðsíða 50
210
»íslenzkan í álögum
átti’ ei vini marga,
kongsdóttir hjá kotungum,
kunni’ ei neinn að bjarga «
»Álög þau sér aldar-kvöld
af henni leyst að mestu.
Nú má hennar næsta öld
njóta heilli beztu.«
Fjórði kaflinn er um framtíð íslands t. d.
»Vel má lifa’ á landi hér,
lát það framtíð skilja,
ef að þjóðin þar til ber
þrek og hygni’ og vilja.«
»Hér er nóg um björg og brauð,
berirðu töfra-sprotann;
þetta land á ærinn auð,
ef menn kunna’ að nota’ hann.«
Aldarmóta-óður er yfirleitt mjög vel ortur. Hann ber vitni um
einlæga ættjarðarást og sterka trú á framtíð íslands, eins og alt sem
Jón Ólafsson hefir kveðið. H. P.
FISKIRANNSÓKNIR 1900. Eftir Bjarna Sœmundsson (sérprentun
úr »Andvara« 1901).
Sumarið 1900 fór höfundurinn rannsóknarferð um Norðurland.
Hann kannaði þar veiðivötn og veiðiár. Við rannsóknir þessar var
hann frá 9. júlí til 17. ágúst. Ritgerð þessi er skýrsla til landshöfð-
ingjans. Hún er um 5 arkir að stærð og er í fjórum köflum.
Fyrsti kaflinn er um »silungsvötn og silungsveiðar«. Höfundurinn
lýsir þar öllum helztu silungsvötnum í sveitum á Norðurlandi, en heiða-
vötnunum sleppir hann. Sjálfur kannaði hann allmörg silungsvötn, en
sumum lýsir hann eftir frásögn annarra nafngreindra manna. Ferða-
tími hans var of stuttur. Hann gat því eigi komið eins víða og hann
vildi. Sakir þess hefir honum og sést yfir veiðitjarnir t. d. Grundar-
tjarnir í Svínadal í Húnavatnssýslu, Tjarnir þessar eru merkilegar á
margan hátt. í þeim hefir og verið allmikil silungsveiði. — Höí.
segir, að »jurtagróður sé yfirleitt miklu minni í vötnum norðanlands en
sunnan« og »silungurinn í vötnum sunnanlands að meðaltali stærri en
nyrðra«. Þó á hvorugt þetta við Mývatn. Það er álit höf., að í veiði-
vötnunum á Norðurlandi veiðist árlega um 124,000 af silungi. Og sé
pundið af honum reiknað á 10 aura, þá verði silungsveiðin á Norður-
landi »um 13,000 kr. virði eða álíka mikils virði og á Suðurlandi (sjá
Andv. 1897)«.
Annar kaflinn er um »laxár og laxveiðar«. í*ar er stutt en greini-
leg lýsing á lhxánum á Norðurlandi. Á seinni árum hefir laxveiði
hnignað í Húnavatnssýslu. Höf. hyggur, að of mikið hafi verið veitt í