Eimreiðin - 01.09.1902, Síða 54
214
Jólagj öfin.
(Santa Claus kemur til Simpson’s Bar). Eftir Bret Harte.
Rigningar höfðu gengið í Sacramento-dalnum. Áin, North
Fork hafði flætt yfir bakka sína og lækurinn, Rattlesnake Creek1
var ófær. Fáeinir hnöllungssteinar höfðu bent á sumarvaðið við
Simpson’s Crossing.2 Peir vóru nú í kafi undir vatnsflóði miklu,
er náði alla leið til hæðanna við fjallsræturnar.3 Póstferðavagninn
hafði orðið að nema staðar við Granger’s. Seinasta póstinn varð
að skilja eftir í foræðunum. En ökumaðurinn bjargaði lífinu með
sundi. Blaðið »Sierra Avalanche«4 var stórlátt og hreykið yfir því
fyrir hönd sveitar sinnar, að þar »væri nú jafnstórt land og ríkið
Massachusetts vatni þakið.«
Veðrið var engu betra á hæðunum. Á veginum yfir fjöllin var
var forin djúp. Flvorki líkamlegur kraftur né siðferðisávítun gat
mjakað flutningsvögnunum burt af illa veginum, sem þeir höfðu
gengið á. Þeir tálmuðu umferðinni. Vegurinn til þorpsins, Simp-
son’s Bar, var alþakinn strönduðum akfærum og bergmálaði af
blótsyrðum. Pangað var eigi hægt að komast. Simpson’s Bar
stóð álengdar hundvotur af rigningunni, forugur og stormlaminn. Og
vatnsflóðið ógnaði honum. En hann sat, eins og svöluhreiður, fastur
við steinbrúnir og klofin súluhöfuð Table Mountain’s6 og skalf í
stormviðrinu. Pað var aðfangadagskvöld 1862.
Pegar nóttin lagðist yfir nýlenduna, skinu fáein ljós gegnum
þokuna frá kofagluggunum báðumegin við aðalveginn. Nú runnu
lækir eftir honum í ýmsar áttir, og hvirfilvindar lömdu hann. Til
allrar hamingju vóru flestir nýlendumenn komnir saman í Tliomp-
son’s-búð. Peir þrengdu sér saman umhverfis eldrauðan ofn,
hræktu á hann og þögðu, eins og það væri viðtekin samkvæmis-
regla þeirra, að þetta kæmi í staðinn fyrir viðræður. Allar skemt-
ana-uppsprettur, sem hægt var að nota í Simpson’s Bar, vóru
í raun og veru fyrir löngu þrotnar. Vatnsflóðið tálmaði
venjulegri vinnu í gjánum og við ána. Sakir þess var skortur
á peningum og brennivíni, svo að flestar ólöglegar hressingar
1 Skellinöðrulækur.
flóðið. 5 Borðfjall.
2 Simpson’s-vað.
3 Sierra Nevada.
4 Sierra-snjó-
pýð.