Eimreiðin - 01.09.1902, Page 69
229
»Það er dálítið í böglinum handa Johnny. Spentu hann af
mér. Eg get það ekki.«
Gamli spenti böggulinn af honum og lagði hann fyrir framan
uppgefna manninn.
»Opnaðu hann, fljóttU
Gamli gerði það með skjálfandi fingrum. I böglinum vóru
aðeins fáein léleg leikföng — ódýr og luraleg, það veit hamingjan,
en pent þeirra og glingur ljómaði. Eitt þeirra var brotið, öðru,
er ég hræddur um, var gerspilt af vatni, og þriðja hafði fengið
ljótan ótætis-blett.
»Leikföngin eru ekki mjög ásjáleg, það er satt,« sagði Dick,
hryggur í bragði .... »En við gátum ekki fengið neitt betra . . .
Taktu þau, Gamli, og láttu þau í sokkana hans og segðu honum
— segðu honum, þú veizt — styddu mig, Gamli.« Gamli greip
Dick, um leið og hann hneig niður. »Segðu honum,« sagði Dick
með fjörlausu brosi, — »segðu honum, að Sandy Claus hafi komið
hingað.«
Á þenna hátt kom Santa Claus til Simpson's Bar, forugur,
rifinn og tættur, órakaður og ógreiddur, og annar handleggur hans
hékk brotinn niður með síðunni. Og hann hneig niður við fyrsta
þröskuldinn, sem hann kom að. Jólasólin kom í hægðum sínum á
eftir og snerti fjarlægu fjalltindana með óumræðilega ástúðlegum,
rósfögrum ylgeislum. Og hún horfði svo blíðlega á Simpson’s
Bar, að alt fjallið roðnaði mót himninum, eins og það hefði verið
staðið að drengilegu ágætisverki.
Hafsteinn Pétursson
þýddi.
Bret Harte hét fullu nafni Francis Bret Harte. Hann var
fæddur í bænum Albany í ríkinu New York innan Bandaríkjanna
1839. Faðir hans var skólakennari. Árið 1854 fór hann vestur
til Kalííorníu í mannstraumnum mikla, sem streymdi þangað til þess
að leita að gulli. Um 2—3 ára tíma reikaði hann víða um, eins
og gullnemum var þá títt, og rak eina atvinnu eftir aðra. Á ár-
um þessum fékk hann við eigin reynslu mjög nákvæma og víðtæka
þekking á öllum siðum og lífernisháttum gullnemanna í Kalíforníu.
Árið 1857 settist Bret Harte að í San Francisco. I fyrstu var
hann setjari í prentsmiðju einni, en brátt gerðist hann rithöfundur.
Báru ritgerðir hans, bæði í blöðum og tímaritum, langt af öllu því,
sem menn áður höfðu átt að venjast í San Francisco. Einkum