Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Side 2

Eimreiðin - 01.10.1919, Side 2
194 RADÍUM IEIMREIÐIN reyndist jarðtegund þessi afar-geislarík og ályktaði því, að hún mundi hafa óþekt frumefni að geyma. Ekki síst fyrir þetta eru rannsóknir frú Curie mjög glæsilegar; hún á- lyktar að nýtt efni með sérstakri náttúru hljóti að vera til, áður en hún eða aðrir eínafræðingar hafa fundið það. Frúin átti við ýmsa erfiðleika að striða því tilraunirnar voru að öllu leyti dýrar og flóknar og útheimtu m. a. afar-mikið af jarð- tegundinni frá Bæ- heimi. Stjórn Aust- urríkis sýndi þá rausn.að gefa henni og senda til París- ar eina smálest af »Pechblende«; var þessi dýrmæti jarð- vegur klofinn í ýms efnasambönd og lauk tilraununum þannig, að frú Cu- rie fann nýtt frum- efni með afar-mik- illi geislaorku og nefndi það radíum (radius = geisli). Hið nýja frumefni fanst í upphafi í 1. mynd. _ Krabbamein i andliti. Sambandi VÍð Önn- . ur efni, sem radí- um-salt, en árið 1910 tókst frú Curie að framleiða al- gerlega hreinan radíum-málm. Til þess að vinna radíum úr einni smálest þeirrar jarð- tegundar, sem það finst í, þarf margar smálestir af kem- iskum efnum, ósköpin öll af vatni, mikinn vinnukraft og húsakynni; radíum hlýtur því að vera dýrt efni, enda verða ekki unnin meira en ca. 20 centigrömm radíums úr allri smálestinni; það er álíka mikið og fimti hluti úr venjulegum aspirín-skamti handa fullorðnum manni.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.