Eimreiðin - 01.10.1919, Side 3
EIMREIÐIN]
RADÍUM
195
Alls munu hafa fundist um 40 ný geislarík frumefni,
sem eru hvert öðru skyld og venjulega skipað niður í
fjóra aðalflokka.
Rannsókn á radíum og öðrum geislandi efnum hefir
leitt ýmislegt nýtt í ljós um eðli og ásigkomulag frum-
efnanna. Enginn vafi leikur á að radíum sé frumefni; það
hefir ýmisleg einkenni, sem til þess eru talin óyggjandi,
svo sem ákveðinn
þunga efniseind-
anna (atómanna),
sérstök sambönd
við önnur efni, ein-
kennilegt »speetr-
um« og svo frv.
En radíum er þó
annars eðlis en
hin gamalkunnu,
rosknu og ráðsettu
frumefni, t. d. járn
eða gull; það er
engu líkara en í
því sé einhver ó-
rói eða óeirð, sem
lýsir sér þannig
að radíum klofnar
sundur og mynd-
ast af því önnur
frumefni — helíum
og polonium — og
klykkja þessar byltingar efniseinda radíums út með þvi,
að af þeim myndast blý. Þar að auki gefur radíum frá
sér eim eða gufu, svonefnda »emanation«.
Það hefir verið einn af höfuðlærdómum efnafræðinga
nútimans, að einu frumefni yrði ekki breytt í annað; járn
væri járn og gæti aldrei annað orðið og svo væri og um
önnur frumefni. En nú kemur í ljós að radíum og fleirk
geislarík efni ekki einasta klofna og ganga í sambönd við
önnur efni, heldur myndast beinlínis af þeim ný frumefni;
*13