Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Qupperneq 9

Eimreiðin - 01.10.1919, Qupperneq 9
EIMREIÐIN] RADÍUM 201 Til þess að forðast skaðvæn brunasár og annað ógagn af völdum radíumgeislanna þarf venjulega að skjóta þykk- um blýplötum í veg fyrir geislana. Sé tilætlunin að geisla krabbamein í vör, þarf því fyrst að leggja og festa blý- plötu yfir meinið, en leggja radíumhylkin yfir plötuna. Geislarnir þurfa því fyrst og fremst að komast gegnum hið lokaða platínuhylki, sem radíumduftið er í, og þar á eftir gegnum þykka blýplötu áður en þeir komast að sár- inu. Með þessu móti er trygð geislun á meininu með hin- um sterkustu geislum, en veikir og gagnslausir eða jafn- vel skaðvænir geislar komast ekki gegnum svo þykka málma. Sjúklingarnir eru misjafnlega lengi geislaðir í hvert sinn; fer það eftir eðli sjúkdómsins og ásigkomulagi. Stundum liggur radíum að eins í 1—2 klukkustundir við sjúkling- inn, en geislunin getur líka tekið heilan sólarhring. Geisl- unin er mjög misjafnlega sterk; fer það eftir þvi hve mikið radíum er notað og hve margar klukkustundir og er styrkleiki geislunarinnar einmitt oft til tekinn í milli- gram-stundum. Miklu ræður og hvers konar málmplötum (»filtrum«) og hve þykkum er hleypt í veg fyrir geislana; stundum er notað gúmmí eða önnur efni í stað málina. Alt þetta verður radíumlæknirinn að ákveða í hvert skifti eftir nákvæma skoðun á sjúklingnum. Radíum hefir verið notað til annars en að lækna sjúka menn og þjáða. Styrjaldarárin var radíum tekið í þjón- uslu hernaðarins til þess að greiða fyrir limlestingum og manndrápum. Stórskotaliðsmönnum hugsaðist sem sé það snjallræði, að hafa radíum á fallbyssumiðum til þess að betra væri að miða byssunum í skuggsýnu. Með því að koma fyrir á' byssumiðinu efni sem lýsir í myrkri fyrir áhrif radíums, fengu menn dálítinn ljósdepil á miðið og gátu því betur miðað byssunum. Afleiðingin af þessu varð sú, að mestalt radíum, sem framleitt var, gekk til hernað- arþarfa en lækningarnar voru látnar mæta afgangi. Síð- ustu styrjaldarárin fengu Bretar aðallega til hernaðarþarfa á viku hverri álíka mikið radíum frá Ameríku og radíum- forði sá er, sem Radíumstofnunin í Reykjavík hefir eign-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.